Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:03 0 0°C
Laxárdalsh. 19:03 0 0°C
Vatnsskarð 19:03 0 0°C
Þverárfjall 19:03 0 0°C
Kjalarnes 19:03 0 0°C
Hafnarfjall 19:03 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV ásamt Sigurður Ingi og Lilju. Ljósm: stjornarradid.is
Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV ásamt Sigurður Ingi og Lilju. Ljósm: stjornarradid.is
Frá undirrituninni í dag. Fulltrúar landshlutasamtaka auk ráðherrana tveggja. Ljósm: stjornarradid.is
Frá undirrituninni í dag. Fulltrúar landshlutasamtaka auk ráðherrana tveggja. Ljósm: stjornarradid.is
Fréttir | 12. nóvember 2019 - kl. 19:45
Samningar um sóknaráætlanir landshluta undirritaðir

Nýir sóknaráætlanasamningar við átta landshlutasamtök sveitarfélaga voru undirritaðir í dag, þar á meðal við Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, mennta- og menningarmálaráðherra og fulltrúar landshlutasamtakanna undirrituðu samningana átta við hátíðlega athöfn í Ráðherrabústaðnum. Grunnframlag ríkisins til samninganna árið 2020 nemur 716 milljónum króna en með viðaukum og framlagi sveitarfélaga nema framlög alls 929 milljónum króna.

Samningarnir byggja á lögum nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir og gilda til fimm ára, 2020-2024. Markmið laganna er að efla byggðaþróun og auka samráð milli ráðuneyta á sviði byggðamála, innan hvers landshluta og milli stjórnsýslustiga, jafnframt að færa til sveitarstjórna aukna ábyrgð á sviði byggða- og samfélagsþróunar.

Sóknaráætlanir landshluta eru þróunaráætlanir sem fela í sér stöðumat viðkomandi landshluta, framtíðarsýn, markmið og aðgerðir til að ná þeim markmiðum. Markmiðið er að ráðstöfun þeirra fjármuna sem varið er til verkefna í einstökum landshlutum á sviði samfélags- og byggðamála byggi á áherslum heimamanna.

„Sóknaráætlanir eru öflugt tæki sem heimamenn í hverjum landshluta geta beitt til að efla blómlegar byggðir um land allt. Hugmyndafræði sóknaráætlana gengur út á að ná fram betri nýtingu fjármuna og færa ákvarðanatöku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna. Þær hafa sannað gildi sitt en grunnhugsunin er valdefling landahluta er byggi á stefnumótun, áherslum og áætlanagerð þeirra,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

„Gegnum sóknaráætlanir er lagður grunnur að öflugu menningarstarfi um land allt en framlög fara bæði til menningarstofnana og til einstakra verkefna í skapandi greinum. Menningarlíf nærir samfélagið á hverjum stað, bæði fyrir þá sem skapa og þá sem þess njóta og ég hvet áhugasama til þess að kynna sér þau fjölbreyttu verkefni sem þessu tengjast og þá möguleika sem felast í menningarsamstarfi ríkisins og sveitarfélaganna,“ segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra í sömu tilkynningu. 

Árið 2020 er gert ráð fyrir að grunnframlag ríkisins til samninganna verði 716,1 m.kr., þar af 492,5 frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu og 223,6 frá menntamálaráðuneytinu. Til viðbótar eru gerðir sérstakir viðaukar um að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið leggi 100 m.kr til sértækra verkefna sóknaráætlanasvæða, mennta- og menningarmálaráðuneytið leggi 32,8 m.kr. til menningarmiðstöðva og að umhverfis- og auðlindaráðuneytið leggi til 10 m.kr. til verkefna sem tengjast hringrásarhagkerfi og loftslagsmálum. Loks koma til framlög sveitarfélaga, en áætlað er að þau nemi um 70 m.kr. á árinu 2020.

Forsögu sóknaráætlana má rekja til ársins 2011 þegar byrjað var að þróa hugmyndafræðina innan Stjórnarráðsins en fyrstu samningar um sóknaráætlanir landshluta voru gerðir árið 2013. Verklag sóknaráætlana hefur reynst vel og almenn ánægja er með það, bæði meðal ríkis og sveitarfélaga. Í tvígang hefur verið gerð óháð úttekt á framkvæmd samninganna sem styður við þetta mat.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið