Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Magnús Jónsson hefur verið ráðinn í nýtt starf verkefnastjóra hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra. Hlutverk nýs verkefnisstjóra verður að vinna að því að laða fjárfestingar inn í landshlutann með það fyrir augum að fjölga atvinnutækfærum og auka fjölbreytni þeirra. Starfið er sérstakt áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshlutans og er liður í samningi milli SSNV og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins sem undirritaður var í september 2019. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SSNV.
Magnús er viðskiptafræðingur að mennt, hefur auk þess lokið PMD stjórnendanámi og er vottaður vátryggingafræðingur. Í tilkynningunni segir að hann hafi víðtæka reynslu af rekstri, markaðsmálum og fjárfestingum sem framkvæmdastjóri Framtakssjóðs Landsbankans, sérfræðingur í fyrirtækjaviðskiptum, útibússtjóri Landsbankans, umdæmisstjóri VÍS á Norðurlandi og stjórnarmaður nokkurra fyrirtækja. Í störfum sínum hafi hann meðal annars öðlast mikla reynslu á greiningum á fýsileika verkefna sem og áhættugreiningu sem nýtist vel í starfinu.
"Ég er mjög spenntur að takast á við þetta spennandi en um leið krefjandi verkefni. Ég hef þá trú að á Norðurlandi vestra séu mikil tækifæri til sóknar og ný Sóknaráætlun landshlutans sýnir svo ekki verður um villst að hugur íbúa er sá sami. Undanfarið hefur íbúum á svæðinu verið að fjölga, húsbyggingar eru víðast á svæðinu komnar af stað aftur eftir langt hlé og metnaðarfullar fjárfestingar nokkurra aðila á liðnum árum gefa til kynna áhuga á svæðinu. Það er því góður grunnur til staðar og ég hlakka til að slást í hóp öflugra starfsmanna SSNV í því verkefni að byggja ofan á þann grunn," segir Magnús í tilkynningu frá SSNV.
Magnús hefur störf hjá SSNV í lok mars.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |