Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:06 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:06 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:06 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:06 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:06 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:06 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í dag var fyrsta skóflustungan tekin að viðbyggingu Grunnskóla Húnaþings vestra á Hvammstanga sem einnig mun hýsa Tónlistarskóla Húnaþings vestra. Með viðbyggingunni mun starfsumhverfi kennara og nemenda gjörbreytast til batnaðar og auk þess sem fjölmörg tækifæri skapast með að hafa tónlistarskólann í sama húsnæði. „Það er því tilhlökkunarefni að sjá nýja húsnæðið rísa og undirbúa samvinnu skólastofnanna tveggja undir sama þaki,“ segir í frétt á vef Húnaþings vestra.
Formlegur undirbúningur að byggingunni hófst 2017 þegar byggðarráð Húnaþings vestra skipaði starfshóp sem meta átti þarfir skólans í húsnæðismálum. Í nóvember sama ár var haldinn fjölmennur íbúafundur um framtíðarskipan skólamála sveitarfélaginu. Í upphafi árs 2018 skipaði sveitarstjórn byggingarnefnd til að undirbúa viðbyggingu við grunnskólann og var nefndinni m.a. falið að vinna forskrift fyrir samanburðartillögukeppni um skólabygginguna þar sem þremur arkitektastofum var boðin þátttaka.
Í framhaldinu var gengið til samninga við VA arkitekta. Byggingarnefnd vann síðan að nánari útfærslu og lausnum á fjölmörgum þáttum sem snúa að undirbúningi og hönnun viðbyggingar í samstarfi við VA arkitekta og hagsmunaaðila. Þær áskoranir sneru mest að rýmisþörf tónlistarskóla, legu byggingar, aðgengi milli skóla og íþróttamiðstöðvar, aðkomuleiðir og lóðarhönnun. Í mars 2019 var endurbætt tillaga kynnt sveitarstjórn og hagsmunaaðilum og í apríl sama ár var haldinn opin kynningarfundur á lokatillögunni.
Viðbyggingin tengist eldri skólabyggingu á norðurhlið. Hún er á einni hæð, en stallast í þrjá palla sem hækka með landinu. Kjallari er undir húsinu að hluta. Í nýbyggingu eru rými fyrir frístund, stjórnun, eldhús, mat-/samkomusal, tónlistarskóla, bókasafn, starfsmannaaðstöðu og þrjár kennslustofur fyrir unglingastig. Í kjallara er verkstæði, geymsla og tæknirými. Viðbyggingin er um 1200 fermetrar. Verkið verður boðið út í átta áföngum og nú er að fyrsti áfanginn að hefjast.
Áætlað er að skólahúsnæðið verði svo tilbúið og tekið í notkun haustið 2022, að því er segir á vef Húnaþings vestra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |