Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Búið er að virkja aðgerðarstjórnstöð almannavarna fyrir Norðurland vestra vegna Covid-19 faraldursins og er hún skipuð fulltrúum viðbragðsaðila og heilbrigðisstofnana. Aðgerðarstjórnstöðin er staðsett á Sauðárkróki og sér hún um að samhæfa og stýra aðgerðun í umdæminu. Í tilkynningu segir að lögð hafi verið áhersla á að vinna að samræmingu á viðbrögðum heilsugæslu, sveitarfélaga og viðbragðsaðila.
Skipulagið snýr að því að hægt sé að sinna þeim sem sýkjast og þeim sem mögulega gætu verið sýktir, ýmist í heimahúsi, í sóttkvíarhúsi eða á sjúkrastofnunum. Einnig miðast skipulagið við að tryggt sé að innviðir samfélagsins og mikilvæg fyrirtæki og stofnanir geti áfram starfað.
Skipaðar hafa verið þrjár vettvangsstjórnir, í Skagafirði, Austur-Húnavatnssýslu og Vestur-Húnavatnssýslu. Hlutverk þeirra er að stýra aðgerðum á hverju svæði fyrir sig og framkvæma skipulag og ákvarðanir aðgerðarstjórnstöðvar.
„Mikilvægt er að öll fyrirtæki og stofnanir komi sér upp neyðaráætlunum og skipi sér neyðarstjórnir, þar sem að starfsemin er skipulögð þannig að lágmarkað sé að fjöldi starfsmanna veikist og að starfsemin geti haldið áfram þó svo að hluti starfsmanna veikist. Mun AST kalla eftir slíkum áætlunum í næstu viku,“ segir í tilkynningu frá almannavörnum á Norðurlandi vestra sem lesa má hér á Húnahorninu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |