Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 17. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 11:35 0 0°C
Laxárdalsh. 11:35 0 0°C
Vatnsskarð 11:35 0 0°C
Þverárfjall 11:35 0 0°C
Kjalarnes 11:35 0 0°C
Hafnarfjall 11:35 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Fréttir | 20. mars 2020 - kl. 16:13
Hlé gert á íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna sem felur í sér blöndun hópa

Heilbrigðisráðuneytið hefur í samvinnu við og mennta- og menningarmálaráðuneytið mælst til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu þar til samkomubanni og takmörkun á skólastarfi lýkur. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Þar er að finna leiðbeinandi viðmið um hvernig beri að túlka auglýsingar um takmörkun á samkomum vegna farsótta og takmörkun á skólastarfi vegna farsótta þegar kemur að íþrótta- og æskulýðsstarfi barna, ungmenna og fullorðinna.

Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi:

Kennsla í leik- og grunnskólum fer nú fram í litlum hópum og leitast er við að ekki verði blöndum milli þessara hópa til að hægja eins og unnt er á útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Samkvæmt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi gilda sömu reglur um íþrótta- og æskulýðsstarf barna en ljóst er að ekki er unnt að halda þar sömu hópaskiptingu og í skólum og því óhjákvæmilegt að nemendur munu blandast í íþrótta- og æskulýðsstarfsemi sem stefnt gæti markmiðum sóttvarnarráðstafananna í tvísýnu.

Samkvæmt auglýsingu um takmörkun á skólastarfi gildir um íþrótta- og æskulýðsstarf ungmenna á framhaldsskólaaldri almennt sama regla og um framhaldsskóla, þ.e. að það fer ekki fram nema með fjarkennslu ef unnt er. Um skipulagt íþróttastarf fullorðinna gildir auglýsing um takmörkun á samkomum þannig að heimilt hefur verið að halda því áfram að því marki að ekki séu fleiri en 100 þar samankomnir og að almennt sé unnt að hafa um 2 metra á milli einstaklinga. Ljóst er þó að ekki er unnt að halda þeirri fjarlægð á milli einstaklinga í fjölda íþróttagreina.

Með ákvörðun heilbrigðisráðherra um takmörkun á skólastarfi og samkomum var fyrst og fremst komið á tilteknum viðmiðum í þágu opinberra sóttvarna en nánari útfærsla falin menntamálayfirvöldum í tilviki skólastarfs eða viðkomandi rekstraraðilum eða skipuleggjendum í tilviki takmarkana á samkomur. Eftir samráð Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og mennta- og menningarmálaráðuneytisins síðastliðna viku hefur komið í ljós að framkvæmd þessara ráðstafana hefur reynst flókin.

Af þeim sökum og að virtum þeim sjónarmiðum og skýringum sem fram hafa komið af hálfu ÍSÍ og ýmissa annarra samtaka sem sinna íþrótta- og æskulýðsstarfi mælast heilbrigðisráðuneytið og mennta- og menningarmálaráðuneyti til þess að hlé verði gert á öllu íþrótta- og æskulýðsstarfi barna og ungmenna, sem felur í sér blöndun hópa, nálægð við aðra og snertingu, þar til takmörkun skólastarfs lýkur. Eru skipuleggjendur þess hvattir til að halda uppi félagsstarfi með því að nýta sér tæknina til að halda utan um sína hópa og vera í sambandi við iðkendur og hvetja þá til virkni og hreyfingar eftir því sem við á.

Enn fremur er þeim tilmælum beint til ábyrgðaraðila og skipuleggjenda annars íþrótta- og æskulýðsstarfs að með sama hætti verði gert hlé á starfi sem felur í sér snertingu eða nálægð milli iðkenda sem er minni en 2 metrar, í samræmi við þær meginreglur sem fram koma í auglýsingu um takmörkun á samkomum og á meðan þær takmarkanir eru í gildi.

Yfirvöld benda á heimasíðuna COVID.is, þar sem finna má svör við ýmsum spurningum um m.a. skólahald og viðburði.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið