Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:12 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:12 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:12 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:12 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:12 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:12 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Frá áramótum hefur verið unnið að áherslubreytingum á skrifstofu Blönduósbæjar og þjónustumiðstöð bæjarins. Breytingarnar ná til verkaskiptingar, starfsheita og ábyrgðar lykilstarfsmanna. Á vef Blönduósbæjar koma fram þær starfsmannabreytingar sem orðið hafa.
Kristín Ingibjörg Lárusdóttir hefur tekið við starfi sem launafulltrúi sveitarfélagsins en hún sinnir jafnframt öðrum sérhæfðum og almennum skrifstofustörfum. Elfa Björk Sturludóttir sem áður var launfulltrúi, hefur tekið við starfi sem gjaldkeri, en hún sinnir jafnframt öðrum sérhæfðum og almennum skrifstofustörfum.
Bergþór Gunnarsson sem hóf störf í janúar við þjónustumiðstöð, verður verkefnastjóri veitna, með áherslur á allar veitur sveitafélagsins. Páll Ingþór Kristinsson, sem verið hefur eftirlitsmaður eigna, mun verða verkefnastjóri þjónustumiðstöðvar og sinna daglegri þjónustu hennar ásamt því að hafa áfram eftirlit með eignum sveitarfélagsins og viðhaldi þeirra.
Þorgils Magnússon sem hefur verið byggingafulltrúi, mun nú starfa með starfsheitið skipulags- og byggingafulltrúi, og sinna einnig Húnavatnshreppi og Skagabyggð samkvæmt samningum þar um. Ágúst Þór Bragason, sem verið hefur umsjónamaður tæknideildar, mun verða forstöðumaður eigna- og framkvæmdasviðs. Sigrún Hauksdóttir sem verið hefur aðalbókari Blönduósbæjar, mun verða skrifstofu- og fjármálastjóri, og jafnframt staðgengill sveitarstjóra.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |