Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 15:13 0 0°C
Laxárdalsh. 15:13 0 0°C
Vatnsskarð 15:13 0 0°C
Þverárfjall 15:13 0 0°C
Kjalarnes 15:13 0 0°C
Hafnarfjall 15:13 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Úr Landmannalaugum. Ljóms: stjornarradid.is
Úr Landmannalaugum. Ljóms: stjornarradid.is
Fréttir | 17. maí 2020 - kl. 08:02
Mörg sveitarfélög illa stödd vegna hruns ferðaþjónustu

Byggðastofnun hefur gert samantekt á áhrifum niðursveiflu í ferðaþjónustu á atvinnuástand á landsbyggðinni en í henni er mikilvægi ferðaþjónustunnar greint eftir svæðum og sveitarfélögum. Niðurstöður leiða í ljós að mörg sveitarfélög verða fyrir miklum búsifjum vegna ástandsins en að mati Byggðastofnunar verða níu sveitarfélög fyrir þyngstu höggi; eitt á Norðurlandi eystra, fimm á Suðurlandi og þrjú á Suðurnesjum.

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið fól Byggðastofnun þann 16. apríl sl. að vinna samantektina, með sérstaka áherslu á svæði þar sem ferðaþjónusta hefur haft mikla þýðingu varðandi atvinnutekjur og fjármál sveitarfélaga.

„Greiningin staðfestir að hrun ferðaþjónustunnar hefur gríðarleg áhrif á sveitarfélög landsins. Hún gefur einnig góðar vísbendingar um hvaða sveitarfélög og svæði í byggðalegu tilliti kunni að standa verst að vígi. Það er afar mikilvægt að hafa skýra mynd af stöðunni til þess að stjórnvöld og sveitarfélög geti brugðist vel við og hafið uppbyggingu að nýju,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Í samantektinni er gerð greining á því hvar höggið af ferðaþjónustunni verður harðast, sérstaklega með tilliti til atvinnuleysis og lækkunar atvinnutekna. Í útreikningunum voru settar upp þrjár sviðsmyndir. Bjartsýn sviðsmynd sem gerir ráð fyrir 30% minna atvinnuleysi, miðmynd sem gerir ráð fyrir að atvinnuleysi verði það sama næstu tólf mánuði og það er áætlað í maí og loks svartsýn mynd sem gerir ráð fyrir að atvinnuleysi aukist og verði 30% meira næstu tólf mánuði. Einnig var áætlaður samdráttur á atvinnutekjum eftir helstu greinum, sem tengjast ferðaþjónustu, miðað við atvinnutekjur á árinu 2019. Þar er m.a. stuðst við erlenda kortaveltu og áætlun um samdrátt á henni.

Út frá þessu var reiknuð möguleg lækkun á útsvarsstofni einstakra sveitarfélaga. Samkvæmt þeim útreikningum dregur Byggðastofnun fram níu sveitarfélög sem geta orðið fyrir hvað þyngstu höggi vegna hruns ferðaþjónustunnar. Sveitarfélögin eru: Bláskógabyggð, Rangárþing eystra, Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Sveitarfélagið Hornafjörður á Suðurlandi, Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar á Reykjanesskaga og Skútustaðahreppur á Norðurlandi eystra.

Fleiri sveitarfélög verða fyrir verulegum búsifjum vegna ástandsins en yfirlit um stöðu allra sveitarfélaga er í viðaukum I og II í samantekt Byggðastofnunar. Þar kemur fram að möguleg lækkun á útsvarsstofni sveitarfélaga í Húnavatnssýslum næstu 12 mánuði getur orðið þessi: Húnaþing vestra -4,8%, Blönduósbær -3,9%, Sveitarfélagið Skagaströnd -1,6%, Skagabyggð -0,3%, Húnavatnshreppur -2,0%.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið