Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Mánudagur, 13. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:55 0 0°C
Laxárdalsh. 20:55 0 0°C
Vatnsskarð 20:55 0 0°C
Þverárfjall 20:55 0 0°C
Kjalarnes 20:55 0 0°C
Hafnarfjall 20:55 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Kleifar
Kleifar
Í fjóshlöðunni
Í fjóshlöðunni
Verk Hjálmars
Verk Hjálmars
Í fjósinu
Í fjósinu
Frá tónleikum G“SS
Frá tónleikum G“SS
Á tónleikum
Á tónleikum
Fallegt kvöld á Blönduósi
Fallegt kvöld á Blönduósi
Fréttir | 21. júlí 2020 - kl. 10:04
Veisla fyrir augu og eyru á Kleifum

Í fjóshlöðunni á Kleifum við Blönduós er sýning á verkum Hjálmars Stefánssonar frá Smyrlabergi. Sýningin ber yfirskriftina Nafli jarðar og á henni eru 127 málverk eftir Hjálmar sem fengin voru að láni hjá ættingjum og vinum listamannsins. Í gærkvöldi voru haldnir tónleikar á Kleifum með hljómsveitinni GÓSS og var margt um manninn í kvöldsólinni á bökkum Blöndu.

Hljómsveitina skipa þau Sigurður Guðmundsson, Sigríður Thorlacius og Guðmundur Óskar og eru þau á flakki um landið í júlí til að fagna sumrinu.

Þriðja myndlistasýningin á Kleifum
Þetta er í þriðja sinn sem hjónin Áslaug Thorlacius og Finnur Arnar Arnarson standa fyrir myndlistarsýningum í útihúsunum á Kleifum. Árið 2017 settu þau upp sýninguna Ekkert jarm með verkum eftir Ragnar Kjartansson, Doddu Maggý, Olgu Bergmann og Önnu Hallin og Egil Sæbjörnsson. Fyrir þá sýningu hlutu þau Menningarverðlaun DV. Árið 2018 settu þau upp sýninguna Innljós á verkum Sigurðar Guðjónssonar í samstarfi við Listasafn ASÍ. Fyrir þá sýningu hlaut Sigurður Íslensku myndlistarverðlaunin 2018.

Hver var Hjálmar Stefánsson
Hjálmar Stefánsson fæddist árið 1913 á Smyrlabergi á Ásum í Austur-Húnavatnssýslu og lést hann árið 1989. Hann var sonur hjónanna Stefáns Jónssonar, bónda þar og Guðrúnar Kristmundsdóttur frá Melrakkadal í Vestur-Húnavatnssýslu. Systkinin voru tíu, fimm piltar og fimm stúlkur. Hjálmar fór að heiman innan við fermingu, þá er faðir hans var látinn, til að létta á móður sinni að sjá börnunum og sjálfri sér farborða. Dvaldi hann um hríð hjá Hjálmari föðurbróður sínum á Fjósum í Svartárdal, en síðar hjá Klemensi Þorleifssyni á Brún, barnakennara sveitarinnar, og mun hafa notið tilsagnar hans. Hann hlaut nokkra menntun og stundaði ýmsa vinnu á yngri árum, m.a. fylgdi hann Kjarval þegar málarinn var á ferð um Norðurland vestra. Hjálmar var alla tíð einfari og átti lengi við vanheilsu að stríða. Rúmlega þrítugur að aldri flutti hann á Blönduós og tók að mála myndir af mikilli ástríðu. Hann var bókhneigður og eftir hann liggur óútgefið handrit með hugleiðingum, Nafli jarðar.

Hjálmar telst til alþýðulistamanna þar sem hann var ómenntaður í listinni. Þó bera verk hans ekki eingöngu einkenni naívískrar nálgunar því í mörgum þeirra er að finna sterk einkenni módernískrar myndgerðar. Hjálmar hefur haft einstaklega næmt auga fyrir litum og litasamsetningum og margar mynda hans eru algjörar perlur.

Sýningin verður opin frá 10 til 22 alla daga. Henni lýkur sunnudaginn 26. júlí.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið