Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Mánudagur, 13. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 20:26 0 0°C
Laxárdalsh. 20:26 0 0°C
Vatnsskarð 20:26 0 0°C
Þverárfjall 20:26 0 0°C
Kjalarnes 20:26 0 0°C
Hafnarfjall 20:26 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Ísbjörn á gangi í Kaktovik, Alaska, BNA. Ljósm: Snæbjörnsdóttir/Wilson 2018.
Ísbjörn á gangi í Kaktovik, Alaska, BNA. Ljósm: Snæbjörnsdóttir/Wilson 2018.
Fréttir | 21. júlí 2020 - kl. 12:19
Þjóðminjasafnið safnar frásögnum um ísbirni

„Ísbjarnarsögur“ er heiti á nýrri spurningaskrá sem Þjóðminjasafn Íslands sendir út um þessar mundir. Tilgangurinn með henni er að safna minningum fólks um ísbirni með áherslu á að rannsaka ferðir þeirra til Íslands í sögulegu og samtímalegu samhengi. Spurningaskráin er hluti af þriggja ára rannsóknarverkefni sem unnið er í samstarfi íslenskra og alþjóðlegra háskóla og safna. Verkefnið er styrkt af Rannsóknasjóði Rannís 2019-2021.

Spurningaskránni er svarað á vefsíðu menningarsögulega gagnasafnsins Sarpur, https://www.sarpur.is/Spurningaskra.aspx?ID=2083958. “Þær frásagnir sem berast verða varðveittar um ókominn tíma og gerðar öllum aðgengilegar, nema annað sé tekið fram. Nöfn heimildarmanna birtast ekki,“ segir í tilkynningu.

Markmið rannsóknarverkefnisins, sem ber heitið „Ísbirnir á villigötum“, er að auka þekkingu á fjölþættum tengslum dýra, manna og umhverfis á tímum loftslagshlýnunar og hækkandi sjávarmáls. Unnið verður út frá sjónarhorni samtímlista, þannnig að í verkefninu verða mörk menningar og raunveruleika skoðuð, samverkandi áhrif loftslagsbreytinga á umhverfisrof og fólksflutninga. Í rannsókinni verður safnað saman textum, myndum, hljóði, lífsýnum og öðru efni sem tengist ferðum ísbjarna til landsins.

Verkefnið er hýst innan Listaháskóla Íslands og er unnið undir stjórn aðalrannsakendanna Bryndísar H. Snæbjörnsdóttur, prófessors við myndlistardeild Listaháskóla Íslands, og Mark Wilson, prófessors í myndlist við University of Cumbria í Bretlandi. Meðrannsakendur verkefnisins eru Kristinn Schram, dósent í þjóðfræði við Háskóla Íslands, og Æsa Sigurjóndóttir, dósent í listfræði við Háskóla Íslands. Verkefnið er unnið þvert á fræðigreinar, en þátttakendur koma úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Institute of the Arts í University of Cumbria (UK), félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Háskóla Íslands, og íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Samstarfsstofnanir eru Þjóðminjasafn Íslands, Anchorage Museum í Alaska (US), Listasafnið á Akureyri, Bureau of Ocean Energy Management (US) og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Ströndum. 

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið