Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Sunnudagur, 28. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 05:32 0 0°C
Laxárdalsh. 05:32 0 0°C
Vatnsskarð 05:32 0 0°C
Þverárfjall 05:32 0 0°C
Kjalarnes 05:32 0 0°C
Hafnarfjall 05:32 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 17. desember 2020 - kl. 16:48
Fyrirkomulag heimsókna á HSN um aðventu og yfir jólahátíðina
Tilkynning frá HSN

Fyrirkomulag heimsókna á hjúkrunar- og sjúkradeildum HSN á aðventu og yfir jólahátíðina verður sem hér segir og tekur gildi frá og með 17. desember 2020.

1.    Heimsóknir á aðventu og um hátíðarnar. Opið alla daga fyrir heimsóknir og 1-2 gestir geta komið í heimsókn hvern dag. Börn yngri en 18 ára eru velkomin og teljast þau þá annar af þessum tveimur gestum. Gestir mega ekki dvelja í almennum rýmum, heldur eingöngu inni hjá íbúa. Ekki er opið fyrir heimsóknir á matmálstímum, (á einnig við á aðfangadags- og jólakvöldi). 

2.    Alfarið er mælst gegn því að íbúar fari í heimsókn til ættingja á þessum tíma. Eftir slíka heimsókn þarf íbúi að fara í sóttkví með ættingja á hans heimili og sýnatöku að sóttkví lokinni áður en heimild er veitt til að koma aftur inn á hjúkrunarheimilið.

3.    Gestur má ekki koma inn á hjúkrunar- eða sjúkradeild nema hafa sinnt eigin sóttvörnum í hvívetna. Fólk sem kemur erlendis frá verður að hafa lokið sóttkví og neikvæð niðurstaða seinni sýnatöku þarf að liggja fyrir. Gott er að láta 3 daga líða til viðbótar áður en komið er inn á hjúkrunarheimili.

4.    Stjórnandi heimilis getur veitt undanþágu frá þessum reglum við mikil veikindi eða sambærileg atvik.

 

- Munið að spritta hendur við komu og áður en þið yfirgefið heimilið.

- Allir gestir þurfa að koma með andlitsgrímu (maska). Óheimilt er að koma með taugrímu.

- Vinsamlega hafið grímuna á ykkur allan tímann á meðan heimsókn stendur.

- Vinsamlega farið beint inn á herbergi íbúa, ekki stoppa og spjalla á leiðinni. Ef íbúi er ekki inni á herbergi þá biðjið þið starfsfólk að sækja hann, ekki gera það sjálf.

- Virðið 2ja metra regluna og forðist snertingu við íbúa.

- Heimilt er að fara með íbúa út í göngutúr í nærumhverfi á meðan heimsókn stendur.

- Ekki er heimilt að fara í bíltúr eða heimsókn með heimsóknargesti sínum.

 

Vinsamlega EKKI koma í heimsókn ef:

·       Þú ert í sóttkví eða einangrun.

·       Þú bíður eftir niðurstöðu úr sýnatöku.

·       Þú ert með flensulík einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).

·       Þú varst erlendis og hefur ekki fengið neikvæða niðurstöðu úr seinni sýnatöku.

 

Við biðlum til ættingja að leggja eigin hagsmuni til hliðar fyrir hagsmuni heildarinnar.

Framkvæmdastjórn HSN

 

Höf. ass
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið