Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á ársþingi Samtaka veitarfélaga á Norðurlandi vestra, sem haldið var í fjarfundi 16. apríl síðastliðinn, voru Byggðagleraugu SSNV veitt í fyrsta sinn. Viðurkenningin er veitt þeirri stofnun eða ráðuneyti sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa og verkefna á Norðurlandi vestra. Vinnumálastofnun hlaut viðurkenninguna fyrir árangursríka uppbyggingu starfsstöðva stofnunarinnar á Hvammstanga og Skagaströnd.
Á vef SSNV kemur fram að starfsstöðvarnar báðar hafi mikla þýðingu fyrir samfélögin á Norðurlandi vestra og þyki fyrirmyndardæmi um árangursríkan flutning verkefna á landsbyggðina. Frá opnun þeirra hafi þær eflst verulega og starfi þar nú samtals vel yfir 40 starfsmenn. Slíkur fjöldi starfa hafi mikil áhrif í hagkerfi svæðisins og stuðli að aukinni byggðafestu og uppbyggingu í landshlutanum.
Á vef SSNV segir: „Undanfarið hefur mikið verið rætt um störf án staðsetningar og almennt flutning starfa út á land sem m.a. hefur lengi verið baráttumál sveitarstjórnarmanna á Norðurlandi vestra. Til að vekja athygli á þessu og jafnframt hvetja og þakka þeim sem vel hafa staðið sig hefur stjórn SSNV ákveðið að veita á ársþingi ár hvert, viðurkenninguna Byggðagleraugun, þeirri stofnun eða ráðuneyti sem þykir hafa skarað fram úr í fjölgun starfa/verkefna á Norðurlandi vestra eða með öðrum hætti stuðlað að uppbyggingu hans.
Er viðurkenningunni ætlað að hvetja forsvarsmenn stofnana til að horfa með „byggðagleraugunum“ á verkefni sinna eininga og nýta þau tækifæri sem gefast til flutnings starfa/verkefna á landsbyggðina í samræmi við áherslur byggðaáætlunar og annarra áherslna ríkisins. Viðurkenningarskjalið er hannað af Ólínu Sif Einarsdóttur, grafískum hönnuði ÓE Design, sem búsett er í Skagafirði.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |