Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 22:39 0 0°C
Laxárdalsh. 22:39 0 0°C
Vatnsskarð 22:39 0 0°C
Þverárfjall 22:39 0 0°C
Kjalarnes 22:39 0 0°C
Hafnarfjall 22:39 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Heiðlóa
Heiðlóa
Fréttir | 22. apríl 2021 - kl. 12:15
Heiðlóan er Fugl ársins 2021

Heiðlóan er sigurvegari kosninga um titilinn Fugl ársins 2021. Hún flaug beint á toppinn í atkvæðagreiðslunni og sigraði með glæsibrag þar sem hún fékk bæði flest atkvæði sem fyrsta val kjósenda  og var einnig með flest atkvæði samanlagt sem 1.-5. val. Himbriminn veitti henni harða keppni. Alls bárust 2054 atkvæði og stóð valið um 20 fugla. Velja mátti fimm fugla og raða þeim í sæti 1.-5. 

Það er Fuglavernd sem stendur að baki kosningu á Fugli ársins en stefnt er að því að hún verði árlegur viðburður héðan í frá enda voru viðtökurnar frábærar. Keppnin er  haldin í þeim tilgangi að vekja athygli á fuglum og þeim ógnum sem að þeim steðja, þar á meðal röskun búsvæða og loftslagsbreytingar. Í hópi fugla sem voru keppendur um titilinn Fugl ársins og eru í miklum vanda á Íslandi eru lundi, kría og sendlingur.

Staða heiðlóunnar á Íslandi er þó góð og telst stofninn vera hátt í 400 þúsund pör. Hún er algengur og útbreiddur varpfugl og Ísland er mjög mikilvægt búsvæði fyrir heiðlóuna því að um þriðjungur allra heiðlóa í heiminum verpur hér á landi. Heiðlóan er farfugl og flýgur á haustin til Vestur-Evrópu, aðallega Írlands, en einnig í Frakklands, Spánar, Portúgal og Marokkó, þar sem hún dvelur við strendur og árósa.

Titillinn Fugl ársins 2021 er enn ein fjöður í hatt heiðlóunnar sem einnig sigraði BirdEurovisionkeppnina árið 2002 með fögrum söng sínum. Heiðlóan er gjarnan kölluð vorboðinn ljúfi og skipar sérstakan sess í hugum landsmanna sem tákn vorkomunnar og er fréttum af fyrstu komu heiðlóunnar á hverju vori ákaft fagnað. Um hana hafa einnig löngum verið ort og kveðin rómantísk ljóð.

Sé ég gróa og grænka kvist
grynnist snjóatakið
vorið hló er heyrði ég fyrst
hlýja lóukvakið

Lóuvísur 1929, Stefán Vagnsson

Heiðlóan stóð ekki ein í sinni kosningabaráttu en sérstök talskona hennar í keppninni var Guðrún Jónsdóttir. Hún lagði dag við nótt við að lyfta heiðlóunni á flug í keppninni, fór í útvarpsviðtöl, opnaði kosningaskrifstofu, var með kosningakaffi á pallinum og lét útbúa sérstakan hringitón í síma með lóusöng. Hún stofnaði einnig fésbókarsíðu fyrir heiðlóuna sem þegar er komin með um 600 fylgjendur. 

Allir 20 fuglarnir í framboði höfðu kosningastjóra á sínum snærum, fólk úr ýmsum áttum, á öllum aldri, sem stóð sig með stakri prýði. Margir stofnuðu samfélagsmiðlasíður fyrir sína fugla, gerðu myndbönd, fóru í viðtöl og fengu jafnvel sína eigin vefsíðu eins og himbriminn. Fuglavernd þakkar öllum kosningastjórunum kærlega fyrir að leggja fuglum og félaginu lið sitt með þessum hætti og vonar að þau hafi öll haft ánægju af.

,,Lóan er hið eina sanna sameiningartákn þjóðarinnar” sagði Guðrún Jónsdóttir talskona lóunnar og var á því að landsmenn ættu að sameinast um að kjósa hana fugl ársins til að kveða burt kóf og leiðindi síðasta vetrar og það hafa þeir nú gert.

Fuglavernd óskar heiðlóunni til hamingju með titilinn Fugl ársins 2021 og vonar að sumarið verði henni og hennar fiðruðu bræðrum og systrum gjöfult og gott.


Fuglar í 10 efstu sætum í kosningum um Fugl ársins 2021:

1. Heiðlóa
2. Himbrimi
3. Rjúpa
4. Hrafn
5. Maríuerla
6. Kría
7. Hrossagaukur
8. Lundi
9. Svartþröstur
10. Músarrindill

Nánari upplýsingar um frambjóðendur og kosningastjóra þeirra er að finna á vefsíðunni keppninnar fuglarsins.is. 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið