Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 17:12 0 0°C
Laxárdalsh. 17:12 0 0°C
Vatnsskarð 17:12 0 0°C
Þverárfjall 17:12 0 0°C
Kjalarnes 17:12 0 0°C
Hafnarfjall 17:12 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 10. maí 2021 - kl. 09:31
Hertar aðgerðir í gildi í Skagafirði

Vegna fjölda kórónuveirusmita í Skagafirði hefur verið gripið til hertra aðgerða og takmarkana í Skagafirði til þess að reyna að takmarka frekari útbreiðslu veirunnar og ná tökum á ástandinu. Tilslakanir á samkomutakmörkunum sem taka gildi í dag samkvæmt reglugerð heilbrigðisráðuneytisins taka því ekki gildi í Sveitarfélaginu Skagafirði og Akrahreppi fyrr en mánudaginn 17. maí.

Ákveðið hefur verið að fara í eftirfarandi aðgerðir.

  • Öllu skólahaldi í Árskóla verður aflýst frá og með mánudeginum 10. maí a.m.k. til og með föstudeginum 14. maí.
  • Leikskólinn Ársalir verður lokaður á sama tíma, nema fyrir skilgreinda forgangshópa, s.s. heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og sjúkraflutningsmenn næstu viku.
  • Öll próf í Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki verða heimapróf og skólinn lokaður nemendum.
  • Heimavist Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra verður rýmd eins og kostur er.
  • Sundlaugar sveitarfélagsins í Skagafirði verða lokaðar frá og með 10. maí og til og með sunnudeginum 16. maí.
  • Íþróttaæfingar yngri flokka verði óheimilar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum 16. maí.
  • Öllum íþróttamannvirkjum sveitarfélagsins verður lokað nema fyrir æfingar meistaraflokka frá og með mánudeginum 10.maí til og með sunnudeginum 16. maí.
  • Íþróttakappleikir fullorðinna verða spilaðir án áhorfenda.
  • Líkamsræktarstöðvar verða lokaðar frá og með 10. maí til og með sunnudeginum16. maí.
  • Skíðasvæðinu í Tindastóli hefur verið lokað.
  • Umhverfisdagar Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem fara áttu fram 15. maí og plokk-áskorenda keppni milli fyrirtækja sem átti að hefjast núna á mánudag þ.e.a.s á morgun, er frestað um óákveðinn tíma.
  • Ráðhúsið á Sauðárkróki verður lokað frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið.
  • Fundum sveitarstjórnar, nefnda og ráða sveitarfélagsins verður frestað um viku.
  • Öllum menningarviðburðum á Sauðárkóki verður aflýst frá og með 10. maí, til og með sunnudeginum 16. maí. Þar með leiksýningum, bíósýningum og öðrum viðburðum þar sem fólk safnast saman.

Jafnframt þessum aðgerðum hafa stofnanir og fyrirtæki í Skagafirði ákveðið að bregðast við með eftirfarandi hætti.

  • Afgreiðslutími Skagfirðingabúðar verður lengdur til að dreifa betur verslun og draga úr þeim fjölda sem inni er á hverjum tíma. Viðskiptavinir eru beðnir um að taka tillit til þess. 
  • Bílaverkstæði, og Vélaverkstæði KS og Tengill verða lokuð frá og með 10. maí, til og með föstudeginum 14. maí. Tengill mun þó starfa eftir neyðarskipulagi fyrirtækisins næstu viku.
  • Byggingavöruverslun KS á Eyrinni verður lokuð en afgreiðsla verður í gegnum síma.
  • Vörumiðlun mun loka afgreiðslu og jafnframt loka endurvinnslumóttöku en mun afgreiða vörur út úr húsi.
  • Húsnæðis-  og mannvirkjastofnun mun loka afgreiðslu í þessa viku og starfsemi verður skert.
  • Byggðastofnun mun loka afgreiðslunni þessa viku og starfsemi verður skert.
  • 1238 Batlte of Iceland og Grána bistro verður lokað þessa viku.
  • GrandInn Bar verður lokaður þessa viku.
  • Veitingastaðurinn Lemon verður með matsal lokaðan en selur mat út.
  • Afgreiðsla sýslumannsembættisins að Suðurgötu 1 verður lokuð og starfsemin skert frá og með mánudeginum 10. maí þar til annað verður ákveðið. Beina má erindum gegnum síma og tölvupóst, 458-2500 og nordurlandvestra@syslumenn.is.

Aðgerðastjórn vill beina því til þeirra einstaklinga sem eru með einkenni að hafa samband við heilbrigðisstofnunina á Sauðárkróki eða panta tíma í gegnu um heilsuvera.is. Aðgerðastjórn vill beina því til íbúa svæðisins að hafa samband í síma 444-0700 og eða í netfangið nordurland.vestra@logreglan.is ef þeim hafi verið gert að sæta sóttkví og um húsnæðisskort er að ræða.

 

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið