Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 10:32 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 10:32 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 10:32 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 10:32 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 10:32 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 10:32 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Höfðaskóli á Skagaströnd fékk sinn fyrsta grænfána afhentan við hátíðlega athöfn í gær. Grænfáninn er alþjóðleg viðurkenning til skóla á grænni grein sem sinna umhverfismennt og innleiða menntun til sjálfbærni í skólastarfið. Haustið 2019 var skipuð umhverfisnefnd í Höfðaskóla með það að markmiði að verða skóli á grænni grein og geta sótt um grænfánann.
Mikil vinna hefur átt sér stað undanfarin tvö ár þar sem stigin hafa verið skrefin sjö sem þarf að uppfylla til þess að hljóta fánann. Sagt er frá þessu á vef Skagastrandar og þar kemur fram að fulltrúi frá Landvernd hafi tekið út vinnuna í síðustu viku og í gær var fáninn loks dreginn að húni.
Fulltrúar nemenda í umhverfisnefnd, þær Lárey Mara Velemir, Súsanna Valtýsdóttir og Elísa Bríet Björnsdóttir veittu fánanum viðtöku frá Alexöndru Jóhannesdóttur, sveitarstjóra Skagastrandar, sem var mætt fyrir hönd Landverndar til þess að veita skólanum viðurkenninguna.
„Stúlkurnar hafa unnið mikið og gott starf í umhverfisnefnd, þær hafa setið þrjá fundi á önn, séð um dreifingu umhverfissáttmála, komið skilaboðum af fundum til samnemenda sinna og setið úttektar fund með Landvernd svo dæmi séu tekin,“ segir á Skagastrandarvefnum.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |