Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 17. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:10 0 0°C
Laxárdalsh. 04:10 0 0°C
Vatnsskarð 04:10 0 0°C
Þverárfjall 04:10 0 0°C
Kjalarnes 04:10 0 0°C
Hafnarfjall 04:10 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
74. þáttur. Eftir Jón Torfason
09. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
F.v.: Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson.
F.v.: Starri Reynisson, Ingunn Rós Kristjánsdóttir, Bjarney Bjarnadóttir og Guðmundur Gunnarsson.
Fréttir | 07. júní 2021 - kl. 09:01
Framboðslisti Viðreisnar í NV-kjördæmi kynntur

Viðreisn hefur kynnt framboðslista sinn í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningarnar í haust. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, leiðir listann. Í 2. sæti er Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar, situr í 3. sæti listans og Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi, er í 4. sæti.

Í tilkynningu frá Viðreisn kveðst Guðmundur afar stoltur af því að leiða lista Viðreisnar í kjördæminu og hlakkar til kosningabaráttunnar næstu vikur og mánuði.

„Við teflum fram ungu og öflugu hugsjónafólki í bland við reynslubolta; fólki sem hefur ástríðu fyrir svæðinu og íbúum þess. Við erum staðráðin í að setja almannahagsmuni ofar sérhagsmunum og tala fyrir brýnum framfaramálum og tímabærum áherslubreytingum á þessu mest spennandi svæði landsins. Framtíðin er björt í Norðvesturkjördæmi og með þetta mannval mun Viðreisn sannarlega láta til sín taka. Við iðum í skinninu og munum verja næstu mánuðum í að ræða við okkar heimafólk, tala fyrir áherslumálum flokksins og hlusta. Þetta verður frábært kosningasumar," segir Guðmundur.

Notast er við svokallaða fléttulista á framboðslistum Viðreisnar þar sem hver frambjóðandi má ekki vera af sama kyni og sá sem skipar sætið á undan.

Framboðslisti Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi:

1. Guðmundur Gunnarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Bolungarvík
2. Bjarney Bjarnadóttir, kennari. Borgarnes
3. Starri Reynisson, forseti Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Akranes
4. Ingunn Rós Kristjánsdóttir, sálfræðinemi. Ísafjarðarbær
5. Egill Örn Rafnsson, tónlistarmaður og nemi í skapandi greinum við Háskólann á Bifröst. Bifröst
6. Edit Ómarsdóttir, verkefnastjóri Icelandic Startups. Akranes
7. Pétur Magnússon, húsasmiður. Ísafjarðarbær
8. Svandís Edda Halldórsdóttir, lögfræðingur. Akranes
9. Alexander Aron Guðjónsson, rafvirki. Akranes
10. Auður Helga Ólafsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Ísafjarðarbær
11. Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri. Stykkishólmur
12. Lee Ann Maginnis, kennari og lögfræðingur. Blönduós
13. Magnús Ólafs Hansson, húsgagnasmíðameistari. Akranes
14. Ragnheiður Jónasdóttir, forstöðumaður. Akranes
15. Pétur G. Markan, fyrrv. sveitarstjóri og formaður Vestfjarðastofu. Samskiptastjóri. Hafnarfjörður
16. Sigrún Camilla Halldórsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Ísafirði. Ísafjarðarbær

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið