Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:48 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:48 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:48 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:48 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:48 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:48 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Stærsti fjárréttardagur haustsins í Húnavatnssýslum er morgun. Þá verður réttað í Auðkúlurétt, Fossárrétt, Hamarsrétt, Bólstaðarhlíðarrétt, Kjalarlandsrétt, Stafnsrétt, Undirfellsrétt, Víðidalstungurétt og Þverárrétt. Á sunnudaginn verður réttað í Skrapatungurétt og Sveinsstaðarétt. Undirfellsrétt í Vatnsdal og Valdarásrétt í Fitjárdal hefjast báðar í dag.
Fjárréttir sem framundan eru í Húnavatnssýslum:
Auðkúlurétt A.-Hún. laugard. 11. sept. kl. 8.00, seinni réttir mán. 27. sept. kl. 13.00
Fossárrétt í A.-Hún. laugard. 11. sept.
Hamarsrétt á Vatnsnesi, V.-Hún. laugard. 11. sept.
Hlíðarrétt/Bólstaðarhlíðarrétt, A.-Hún. laugard. 11. sept. kl. 16.00, seinni réttir sun. 19. sept. kl. 16.00
Hvalsárrétt í Hrútafirði, Strand. laugard. 18. sept.
Kjalarlandsrétt, A.-Hún. laugard. 11. sept.
Skrapatungurétt, A.-Hún. sunnud. 12. sept. kl. 9.00, seinni réttir sun. 19. sept. kl. 11.00
Stafnsrétt í Svartárdal, A.-Hún. laugard. 11. sept. kl. 8.30, seinni réttir lau. 18. sept. kl. 16.00
Sveinsstaðarétt, A.-Hún. sunnud. 12. sept. kl. 10.00, seinni réttir mán. 27. sept. kl. 9.00
Undirfellsrétt í Vatnsdal, A.-Hún. föstud. 10. sept. kl. 13.00 og lau. 11. sept. kl. 8.00 og mán. 27. sept. kl. 11.00
Valdarásrétt í Fitjárdal, V.-Hún. föstud. 10. sept. kl. 9.00
Víðidalstungurétt í Víðidal, V.-Hún. laugard. 11. sept. kl. 10.00
Þverárrétt í Vesturhópi, V.-Hún. laugardaginn 11. sept. kl. 13.00
Fjöldatakmarkanir vegna gangna og rétta
Heilbrigðisráðuneytið hefur gefið út almenna undanþágu varðandi fjöldatakmörk í réttum á öllu landinu á grundvelli þess að um kerfislega og efnahagslega mikilvæga starfsemi sé að ræða og verða fjöldatakmarkanir því miðaðar við 300 manns en ekki 200 eins og almennt tíðkast.
Ef ekki er hægt að tryggja framkvæmd gangna og rétt miðað við 300 manns þarf að sækja um undanþágu. Vegna fjöldatakmarkana er mælst til þess að gestir komi ekki til réttarstarfa. Því verður fylgt strangt eftir að við réttarstörf séu ekki fleiri en 300 manns. Fjöldatakmörkun tekur ekki til barna sem fædd eru 2016 eða síðar. Eins metra fjarlægðartakmörk eru innan dyra.
Sjá nánar um leiðbeiningar vegna gangna og rétta vegna COVID-19 hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |