Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Föstudagur, 26. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 19:54 0 0°C
Laxárdalsh. 19:54 0 0°C
Vatnsskarð 19:54 0 0°C
Þverárfjall 19:54 0 0°C
Kjalarnes 19:54 0 0°C
Hafnarfjall 19:54 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Fréttir | 07. janúar 2022 - kl. 19:42
Breyttar reglur um sóttkví

Heilbrigðisráðherra hefur breytt reglum um sóttkví í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Með breytingunum er dregið úr takmörkunum á einstaklinga sem þurfa að sæta sóttkví ef þeir eru þríbólusettir gegn Covid. Í tilkynningu segir að um 160.000 einstaklingar séu nú þríbólusettir og því ljóst að breyttar reglur um sóttkví muni gjörbreyta stöðunni. Sama máli gegni um einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu smit og eru tvíbólusettir.

Sóttvarnalæknir bendir á að samkvæmt nýlegum rannsóknum frá Bretlandi og Danmörku dragi örvunarskammtur (alls þrír bóluefnaskammtar) verulega úr líkum á smiti, sérstaklega af völdum delta-afbrigðis kórónaveirunnar. Örvunarskammtur minnki einnig verulega líkur á smiti af völdum ómíkron, þótt bólusetning gegn Covid-19 veiti almennt minni vörn gegn ómíkron en delta. 

Breyttar reglur um sóttkví gilda um:

a) einstaklinga sem eru þríbólusettir og fengu síðustu sprautuna meira en 14 dögum áður en viðkomandi er útsettur fyrir smiti

b) einstaklinga sem hafa jafnað sig af staðfestu Covid-smiti og eru jafnframt tvíbólusettir, að því gefnu að þeir hafi fengið síðari sprautuna meira en 14 dögum áður en þeir voru útsettir. 

Breyttar reglur fela í sér að hlutaðeigandi er:

  • heimilt að sækja vinnu eða skóla og sækja sér nauðsynlega þjónustu, s.s. heilbrigðisþjónustu, fara í matvöruverslanir og lyfjabúðir og nota almenningssamgöngur,
  • óheimilt að fara á mannamót eða staði þar sem fleiri en 20 koma saman, nema í því samhengi sem nefnt er hér að ofan,
  • skylt að nota grímu í umgengni við alla nema þá sem teljast í nánum tengslum og gildir grímuskyldan einnig þótt hægt sé að halda tveggja metra fjarlægð,
  • óheimilt að heimsækja heilbrigðisstofnanir, þar með talin hjúkrunarheimili, nema með sérstöku leyfi viðkomandi stofnunar,
  • skylt að forðast umgengni við einstaklinga sem eru í aukinni hættu á alvarlegum veikindum ef þeir smitast af Covid-19.

Takmörkunum samkvæmt ofangreindum reglum lýkur ekki fyrr en með niðurstöðu PCR-prófs sem tekið er á fimmta degi sóttkvíar. Ef einstaklingur finnur fyrir einkennum smits einhvern tíma á þessu fimm daga tímabili á hann að undirgangast PCR-próf án tafar. Tími í sóttkví er aldrei skemmri en fimm dagar.

Sjá nánar á vef Stjórnarráðsins.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið