Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:05 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:05 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Fulltrúi Íslands á Feneyjatvíæringnum sem opnaður verður á laugardaginn er myndlistarmaðurinn Sigurður Guðjónsson. Hann er þekktur fyrir magnþrungin vídeóverk þar sem mynd, hljóð og rými mynda órofa heild. Sigurður á yfir tuttugu einkasýningar að baki víðs vegar um heiminn, en hann hlaut auk þess Íslensku myndlistarverðlaunin árið 2018 fyrir verk sitt Innljós í kapellu og líkhúsi St. Jósefsspítala í Hafnarfirði á vegum Listasafns ASÍ. Sýninguna kom hann með til Blönduóss og var hún sýnd í útihúsunum á Kleifum.
Á síðustu árum hefur Sigurður einnig unnið í samstarfi við tónskáld, m.a. með Valgeiri Sigurðssyni sem er Blönduósingum kunnugur, og þannig búið til verk sem sameina vídeó, rafhljóð og lifandi flutning listunnendum til yndisauka. Þess má geta að sem barn bjó Sigurður um nokkurra ára skeið á Blönduósi.
Sigurður Guðjónsson er fæddur árið 1975 í Reykjavík. Hann stundaði nám við Billedskolen í Kaupmannahöfn 1998-1999, Listaháskóla Íslands 2000 -2003 BA og Akademie Der Bildenden Kunste í Vínarborg 2004.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |