Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hólakot er nýtt hundahótel sem opnað var nýverið á Böðvarshólum í Vesturhópi en ábúendur á bænum eru Ingveldur Ása Konráðsdóttir og Jón Benedikts Sigurðsson. Átta pláss eru á hótelinu fyrir stóra sem smáa hunda. Ingveldur Ása er með hundaþjálfararéttindi í gegnum IACP sem eru alþjóðasamtök hundaþjálfara. Hún er einnig menntaður búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og þroskaþjálfi. Jón Benedikts er einnig búfræðingur. Ingveldur Ása er fædd og uppalin á Böðvarshólum og er þriðji ættliðurinn sem tekur við búskap á jörðinni.
Rýmin sem hundarnir dvelja í eru með heilum veggjum á milli og grind að framan svo þeir sjái út. Í hverju rými eru bæli en eigendur mega líka koma með bæli fyrir sinn hund. Hundagerði er við hundahótelið og er um 300 fermetrar að stærð. Gerðið er afgirt með tveggja metra hárri girðingu.
Hundarnir fara í útiveru í útigerðið þrisvar sinnum á dag. Um hádegisbil er hvíld. Á veturna ef veður er vont þá er reiðskemma nýtt til þess að hundarnir fái þá hreyfingu sem þeir þurfa.
Öryggismyndavél er í Hólakoti til að fylgjast með hundunum. Allir hundar sem dvelja á hótelinu verða að vera bólusettir og ormahreinsaður.
Nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Hólakots.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |