Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Meðalævilengd karla á Íslandi var 80,9 ár árið 2021 og meðalævilengd kvenna 84,1 ár en meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um. Frá árinu 1988 hafa karlar bætt við sig rúmlega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.
Á tíu ára tímabili (2011–2020) var meðalævi lengst í Sviss eða 83,3 ár. Fast á hæla þeirra komu Spánn (83,1) og Ítalía (83,0). Liechtenstein og Ísland voru í fjórða til fimmta sæti í Evrópu með ævilengd upp á 82,7 ár. Styst var meðalævilengd karla í Úkraínu (72,2), Hvíta-Rússlandi (73,3) og Georgíu (73,8).
Þegar einungis er horft til síðustu tveggja ára, 2019 og 2020, og tilraun gerð til þess að meta þau áhrif sem kórónuveirufaraldurinn hefur haft á dánartíðni, og þar með ævilengd, kemur í ljós að Liechtenstein virðist hafa orðið verst úti vegna faraldursins af þeim Evrópuríkjum sem þegar hafa skilað inn gögnum fyrir árið 2020 en þar styttist ævilengdin um 2,4 ár. Þar á eftir kemur Spánn (1,6), Búlgaría (1,5) og Litháen, Pólland og Rúmenía þar sem ævilengdin styttist um 1,4 ár.
Það land sem samkvæmt þessum mælikvarða virðist hafa farið best út úr faraldrinum er Noregur en þar jókst ævilengdin á milli áranna 2019 og 2020 um 0,3 ár. Næst á eftir þeim kemur Finnland og Danmörk (0,1) og Lettland og Kýpur en þar stóð ævilengdin í stað á milli ára. Samkvæmt þessum lista er Ísland í 6. sæti yfir þau lönd sem virðast hafa komist einna best frá faraldrinum en þess ber að geta að gögn hafa enn ekki borist frá Þýskalandi, Bretlandi og Tyrklandi ásamt tólf öðrum Evrópuþjóðum, að því er segir á vef Hagstofunnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |