Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:49 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:49 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:49 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:49 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:49 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:49 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Frá og með 1. maí mun Pósturinn dreifa bréfum tvisvar í viku um allt land. Áður var bréfum dreift annan hvern dag en breytingin er viðbragð við verulegri fækkun bréfasendinga, að því er segir á vef fyrirtækisins. Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs hjá Póstinum segir að bréfum hafi fækkað gríðarlega á síðustu árum og hafi fjöldi bréfasendinga dregist saman um tæp 80% frá árinu 2010.
„Þetta er mikil breyting sem gerir það að verkum að við þurfum að breyta þjónustunni í samræmi við nýjan raunveruleika. Á blómaskeiði bréfanna fór Pósturinn með mörg bréf í hverja lúgu, nú er kannski farið í þriðju til fjórðu hverja lúgu með að meðaltali eitt bréf. Á sama tíma fjölgar íbúðum ört víðs vegar um landið sem eykur yfirferð sem þarf að fara yfir. Það þarf enginn að örvænta, enda munum við að sjálfsögðu sjá til þess að allir haldi áfram að fá bréfin sín reglulega. Ef dreifing fellur á frídag eða hætta þarf við hana vegna veðurs eða af öðrum ástæðum munum við gæta þess að farið sé af stað við fyrsta tækifæri,“ segir Hörður á vef Póstsins.
Í dreifbýli verður bréfapósti dreift á föstum dögum og er póstnúmerum skipt upp í svokölluð blá og græn svæði. Upplýsingar um póstnúmer, flokkun eftir svæðum og dreifingardaga eru aðgengilegar hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |