Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 08:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 08:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 08:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 08:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 08:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 08:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í helgarblaði Morgunblaðsins er fjallað um Foodsmart Nordic, nýtt íslenskt frumkvöðlafyrirtæki í fæðubótarefnum sem hyggst hefja starfsemi á Blönduósi með vorinu. Rætt er við Katrínu Amni Friðriksdóttur stjórnarformann og Viðar Þorkelsson, framkvæmdastjóra fyrirtækisins. Katrín segir að framleiðslutæki fyrirtækisins hafi komið til landsins í síðustu viku og séu á leiðinni norður og framkvæmdir við 500 fermetra framleiðsluhús séu á lokastigi, þannig að starfsemi ætti að geta hafist á öðrum ársfjórðungi.
Foodsmart Nordic skilgreinir sig sem þekkingarfyrirtæki á sviði framleiðslu á fæðubótarefnum í sjávartengdum vörum og frumkvöðul í framleiðslu á fiskkollageni á Íslandi. Félagið sér mikil tækifæri í framleiðslu á hágæða fæðubótarefnum úr íslenskum hráefnum í samstarfi við önnur fyrirtæki í matvælaiðnaðinum. „Foodsmart Nordic mun styðja við önnur fyrirtæki og við erum opin fyrir öllum góðum hugmyndum,“ segir Viðar í samtali við Morgunblaðið.
Katrín segir að í dag framleiði félagið kollagen, sæbjúgnaduft og fiskprótein í þróunarsetri sínu á Skagaströnd og selji til innlendra aðila. "Foodsmart Nordic hyggst stunda kraftmikla nýsköpun og þannig styðja við uppbyggingu og framleiðslu á hágæða fæðubótarefnum á Íslandi. Okkar hlutverk er að koma hollustunni úr náttúrunni og fiskinum í hylki,“ segir Katrín.
Fram kemur í umfjöllun Morgunblaðsins að heildarfjárfesting verkefnisins sé um 500 milljónir kóna og mun fjármögnun á fjárfestingunni vera að fullu lokið.
Aðspurð hvers vegna Blönduós hafi orðið fyrir valinu segja Katrín og Viðar og það sé fyrst og fremst vegna nálægðarinnar við hráefnið og gott samfélag. „Þarna er líka nóg hreint vatn og græn orka á svæðinu, að ekki sé talað um gott rými. Það er ekki eins hagkvæmt að vera með svona framleiðslu í borg, auk þess sem það er hluti af ímynd fyrirtækisins að sækja í náttúruna.“
Fram kemur að verið sé að ráða fólk til starfa en gert er ráð fyrir 15 stöðugildum við framleiðsluhúsið, fyrir utan afleidd störf, en þessa daga vinna tíu manns við uppsetningu tækja. Katrín og Viðar segja heimamenn á Blönduósi hafa tekið Foodsmart Nordic opnum örmum og staðið þétt við bak fyrirtækisins.
Sjá nánari umfjöllun í helgarblaði Morgunblaðsins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |