Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á vef Húnabyggðar er sagt frá gjaldskrárbreytingum í sorphirðumálum en ný gjaldskrá fyrir sameinað sveitarfélag tók gildi um áramótin. Þar sem breytingarnar eru kynntar seint og gjöldin innheimt með fasteignagjöldum hefur sveitarfélagið ákveðið að fresta fyrsta gjalddaga fasteignagjalda um einn mánuð eða til 1. mars næstkomandi. Samkvæmt nýju gjaldskránni verður sorpgjald fyrir hefðbundna 240 lítra heimilistunnu 62.000 krónur á ári, sem er 52% hækkun fyrir íbúa í fyrrum Húnavatnshreppi og 28% hækkun fyrir íbúa í fyrrum Blönduósbæ.
Mest hækkar sorpgjaldið fyrir stærstu tunnurnar, sem eru 1.100 lítrar eða um 153%. Gjaldið fer úr 76.998 krónur í 195.000 krónur á ári. Sorpgjald fyrir 660 lítra tunnu hækka um 130%, fer úr 53.564 krónur í 124.000 krónur. Samkvæmt nýju gjaldskránni greiða nú allir íbúar Húnabyggðar sama gjald fyrir 240 lítra heimilistunnu, óháð hvar þeir búa. Þurfi íbúar stærri ílát sé eðlilegt að fyrir það sé greitt hærra gjald.
Á vef Húnabyggðar kemur fram að þrátt fyrir þessar hækkanir sé sveitarfélagið ennþá að niðurgreiða málaflokkinn um 40%, að teknu tilliti til þess að hann er að hækka um 20 milljónir á ári vegna nýrra krafna sem tóku gildi um áramótin. Þá er íbúum sem hafa áhuga á að skipta um sorpílát bent á að senda þær óskir á hunabyggd@hunabyggd.is.
Sjá ítarlegri umfjöllun um breytingar á gjaldskrá sorphirðumála í Húnabyggð hér.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |