Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 06:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 06:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 06:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 06:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 06:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 06:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á fundi sveitarstjórnar Skagabyggðar í síðustu viku var samþykkt að endurauglýsa deiliskipulagstillögu í Kálfshamarsvík. Ekkert deiliskipulag er til staðar en talin er þörf á slíku skipulagi meðal annars vegna síaukins fjölda ferðamanna um svæðið. Markmið með deiliskipulaginu er að bæta aðstöðu fyrir ferðamenn og aðgengi þeirra sem sækja Kálfshamarsvík heim. Til að tryggja að verndargildi svæðisins rýrni ekki er nauðsynlegt a byggja upp innviði og fræða gesti um umgengnisreglur sem um svæðið gilda. Greinargerð með deiliskipulagstillögunni má lesa hér.
Deiliskipulagssvæðið er um 20 hektarar að stærð og er í samræmi við gildandi aðalskipulag. Skipulagssvæðið nær yfir allt landsvæði Kálfshamarsnes sem er í eigu sveitarfélagsins Skagabyggðar og að hluta til yfir landsvæði Saura sem nefnist Holtin, auk Framness sem er norðan Kálfshamarstjarnar. Einnig er land innan skipulagssvæðisins í landi Kálfshamars sem er austan Kálfshamarstjarnar.
Kynning á deiliskipulagstillögunni verður á bæjarskrifstofu Blönduósbæjar miðvikudaginn 1. mars klukkan 10-12.
Frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum rennur út 7. apríl næstkomandi og skal þeim skilað á netfangið skipulagsfulltrui@hunathing.is eða með bréfpósti stílað á skipulagsfulltrúa Skagabyggðar Hvammstangabraut 5, 530 Hvammstanga.
Sjá nánar á vef Skagabyggðar, www.skagabyggd.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |