Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:05 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:05 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Undanfarin tvö ár hefur Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna á Reykjum unnið markvisst að skráningu safngripa. Safnið hefur tvisvar fengið styrk úr Safnasjóði til verkefnisins. Í fyrra skiptið var Birta Þórhallsdóttir ráðin til verkefnisins en í seinna skiptið Ágúst Örn Jóhannesson, sem starfað hefur hjá byggðasafninu um áraskeið. Nú hefur byggðasafnið fengið styrk í þriðja skiptið frá Safnasjóði og mun Ágúst sjá aftur um verkefnið. Á þessum árum sem verkefnið hefur verið starfrækt hafa starfsmenn skráð hátt í tvö þúsund gripi. „Við erum mjög stolt af þessum árangri og hlökkum til að halda áfram,“ segir í frétt á vef Húnaþing vestra.
Þar segir einnig: „Hver og einn safngripur á sér sögu og það er mikilvægt að þessi saga sé kirfilega skráð niður með skipulögðum hætti. Nákvæm skráning er lykilatriði safnastarfs og varðveislu menningarminja. Það gerir allt safnastarf svo mikið auðveldara. Uppsetning sýninga verður til dæmis auðveldari og markvissari þegar gott aðgengi er að upplýsingum. Hver gripur sem kemur á safnið okkar fær skráningarnúmer sem mætti líkja við kennitölurnar okkar. Þegar gripirnir hafa fengið sitt númer hefst heljarinnar ferli. Gripirnir eru skráðir í skráningarkerfið Sarp, þeir eru ljósmyndaðir og síðan er þeim pakkað svo vel fari um þá þannig að þeir varðveitist sem best til framtíðar.“
Hægt er að fylgjast með verkefninu á skráningarsíðu safnsins á Sarpi, https://sarpur.is/UmSafn.aspx?SafnID=17 eða jafnvel komið í heimsókn á safnið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |