Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:04 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:04 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:04 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:04 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:04 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:04 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa stendur fyrir súpu- og fræðslukvöldi fimmtudaginn 9. mars 2023 klukkan 19:30 í Grunnskóla Húnaþings vestra. Fyrirlesari kvöldsins er Anna Steinsen frá KVAN, en hún ætlar að fjalla um samskipti milli kynslóða og hvað einkennir hverja kynslóð. Hvernig við getum nýtt okkur styrkleika okkar til að eiga í góðum samskiptum við aðra?
Anna er með BA gráðu í tómstunda-og félagsmálafræði og hefur sérhæft sig í þjálfun á námskeiðum fyrir ungt fólk. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna sem þjálfari á alþjóðavettvangi og starfar m.a. sem fyrirlesari, heilsumarkþjálfi, stjórnendamarkþjálfi og jógakennari.
Aðgangseyrir er 2.5oo kr. Innifalið er ljúffeng súpa, brauð, kaffisopi og áhugaverður fyrirlestur.
Við tökum fagnandi á móti öllum gestum. Markmið súpukvöldanna er að bjóða upp á fræðandi fyrirlestra sem hægt er að tengja markmiðum Soroptimista. Klúbburinn Við Húnaflóa hefur árlega staðið fyrir sjálfstyrkingarnámskeiðum fyrir ungar stúlkur í Húnavatnssýslum.
Súpukvöldin eru hluti af fjáröflun fyrir það verkefni.
Sjáumst vonandi sem allra flest.
Soroptimistar eru alþjóðleg samtök kvenna sem hafa það að markmiði að stuðla að jákvæðri heimsmynd, þar sem samtakamáttur kvenna nær fram því besta sem völ er á. Samtökin vinna að bættri stöðu kvenna, að mannréttindum öllum til handa sem og jafnrétti, framförum og friði með alþjóðlegrar vináttu og skilning að leiðarljósi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |