Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:44 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:44 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:44 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:44 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Foodsmart Nordic leitar að aðila til að stýra nýrri og glæsilegri starfsemi á Blönduósi sem nú er í uppbyggingu og verður tekin í notkun á næstu mánuðum.
Starfið felur í sér yfirumsjón og ábyrgð á aðfangakeðju og framleiðslu á fæðubótarvörum, allt frá innkaupum og birgðahaldi á hráefnum til framleiðslu og afhendingar. Foodsmart Nordic starfar eftir ISO-vottuðu stjórnunarkerfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Rekstrarstjóri ber ábyrgð á daglegum rekstri starfseminnar á Blönduósi og þróunarseturs á Skagastönd og leitast við að tryggja gæði á öllum stigum aðfangakeðju, framleiðslu og birgðahalds. Rekstrarstjóri starfar náið með söludeild Foodsmart Nordic, ber ábyrgð á að skipulag framleiðslu sé í takt við söluáætlanir og tekur virkan þátt í vöruþróun. Næsti yfirmaður rekstrarstjóra er framkvæmdastjóri félagsins.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun eða iðnmenntun sem nýtist í starfi
- Góð þekking og reynsla af aðfanga- og framleiðslustjórnun
- Stjórnunarreynsla hjá framleiðslufyrirtæki með vottaða starfsemi
- Reynsla af nýtingu upplýsingatækni í framleiðslu
- Lausnamiðuð hugsun, nákvæm og fagleg vinnubrögð
- Leiðtogahæfni og þjónustulund
- Góð enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Foodsmart Nordic er þekkingarfyrirtæki á sviði framleiðslu á fæðubótarefnum í sjávartengdum vörum og frumkvöðull í framleiðslu á kollageni á Íslandi. Félagið sér mikil tækifæri í framleiðslu á hágæða fæðubótarefnum úr íslenskum hráefnum í samstarfi við viðskiptavini. Foodsmart Nordic hyggst stunda kraftmikið þróunarstarf til að tryggja framþróun, gæði og árangur vörulínu félagsins.
Foodsmart Nordic er ungt félag sem stefnir á öran vöxt á næstu misserum.Vörur félagsins eru seldar á Íslandi í dag og stefnt er á útflutning þegar nýtt og glæsilegt framleiðsluhús félagsins er komið í notkun.
Umsóknarfrestur er til og með 12. mars nk.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Frekari upplýsingar veitir Viðar Þorkelsson framkvæmdastjóri (vidar@foodsmart.is).
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |