Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:05 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:05 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:05 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:05 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur sent umsögn við frumvarp til laga um samvinnuverkefni um samgönguframkvæmdir. Ráðið fagnar frumvarpinu og bendir á að sveitarfélagið hafi ekki farið varhluta af skorti á uppbyggingu vega. Um land allt sé brýn þörf á uppbyggingu stofn- og tengivega sem muni taka áratugi að ljúka við, sé miðað við fjármagn sem sett er á samgönguáætlun til slíkra verka. Í frumvarpinu eru kynntar leiðir sem stuðla eiga að tækifærum til flýtingar stærri framkvæmda sem uppfylla ákveðin skilyrði. Með því losna fjármunir til annarra verka.
Í umsögn byggðarráðs segir: „Þó svo að frumvarpinu sé fagnað er þó vert að undirstrika það sem tekið er fram í greinargerð að ekki sé gerð krafa um framlög sveitarfélaga til slíkra framkvæmda heldur forystu þeirra um stofnun félaga til að hraða framkvæmdum. Ekki er hlutverk sveitarfélaganna að bera kostnað af slíkum framkvæmdum heldur er það ábyrgð ríkis. Hins vegar þekkja sveitarfélögin vel hvar þörfin er brýnust og því er aðkoma þeirra að félögum sem kunna að vera stofnuð um tilteknar framkvæmdir mikilvæg. Flestir landshlutar hafa unnið staðbundnar samgönguáætlanir og er Norðurland vestra einn þeirra. Því miður hefur borið á því að þær áherslur sem lagðar eru fram í þeim áætlunum eru ekki virtar í ákvörðunum um framkvæmdir. Í greinargerð með frumvarpinu er lögð áhersla á vilja heimamanna og tekur byggðarráð heilshugar undir mikilvægi þess að sá vilji sé virtur.
Brýn nauðsyn er til að leita nýrra leiða til að bæta vegi á Íslandi. Því ber að fagna framlagningu frumvarpsins sem kynnir nýja og framsækna leið til að flýta brýnum framkvæmdum á landsbyggðinni. Því styður byggðarráð Húnaþings vestra að frumvarpið nái fram að ganga.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |