Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 09:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 09:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 09:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 09:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 09:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 09:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í dag var undirritaður samningur um byggingu nýs verknámshúss við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Undirritunin fór fram í verknámshúsi Fjölbrautaskólans að viðstöddu margmenni þ.á.m. nemendum, starfsfólki skólans og fulltrúum úr atvinnulífinu. Samningurinn gerir ráð fyrir stækkun verknámshúss um allt að 1.400 fermetra. Sagt er frá þessu á vef FNV.
Þar kemur fram að kostnaðarskipting á milli ríkis og sveitarfélaga er á þann veg að ríkið greiðir 60% kostnaðar en sveitarfélögin 40%. Vinna við frummatsskýrslu fyrir bygginguna stendur yfir, en að henni lokinni hefst undirbúningur fyrir hönnunarvinnu og útboð.
Ásmundur Einar Daðason barna- og menntamálaráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra, Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagastrandar, Erla Jónsdóttir, oddviti Skagabyggðar, Pétur Arason, sveitarstjóri Húnabyggðar, Sigfús Ingi Sigfússon, sveitarstjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar, Þorleifur Karl Eggertsson, oddviti Húnaþings vestra og Ingileif Oddsdóttir, skólameistari FNV undirrituðu samninginn. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir átti þess ekki kost að vera viðstödd athöfnina.
Á vef FNV segir að fyrirhuguð stækkun verknámshússins sé langþráð í ljósi mikillar fjölgunar iðn- og starfsnámsnemenda við skólann. Nú sé svo komið að á annað hundrað nemenda stundi helgarnám við skólann í húsasmíði, rafvirkjun, bifvélavirkjun og kvikmyndagerð. Þetta þýði að húsnæðið sé nýtt alla daga vikunnar. Þá hafi hlutfall iðn- og starfsnámsnema farið yfir helming nemendafjöldans frá haustinu 2021.
Sjá nánar á vef FNV.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |