Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:25 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:25 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:25 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:25 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:25 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:25 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það hefur líklega ekki farið framhjá mörgum að framundan eru forsetakosningar. Forsetaframbjóðandinn Halla Hrund Logadóttir verður á ferð og flugi um Norðurland í vikunni og býður heimamönnum til opinna funda og samtals um embætti forseta Íslands. Tveir fundir verða í Húnavatnssýslum, í Víðigerði og á Blönduósi.
Í tilkynningu frá Höllu Hrund kemur fram að hún stefnir að því að fara meira um Norðurland á næstu vikum og heimsækja fleiri staði. Fundirnir í þessari vikur eru þessir:
- Mánudagurinn 29. apríl kl. 12: Opinn fundur á North West, Víðigerði
- Mánudagurinn 29. apríl kl. 17: Opinn fundur á Apótekarastofunni, Hótel Blönduósi
- Mánudagurinn 29. apríl kl. 20: Opinn fundur á Kaffi Króki, Sauðárkróki
- Þriðjudagurinn 30. apríl kl. 20: Opinn fundur á Mói Bistró, Menningarhúsinu Hofi, Akureyri
- Miðvikudagurinn 1. maí kl. 12: Opinn fundur á Sel – Hótel Mývatn í Mývatnssveit
- Miðvikudagurinn 1. maí kl. 20: Opinn fundur í Félagsheimili Framsýnar, Húsavík
- Fimmtudagurinn 2. maí kl. 20: Opinn fundur á Kontornum, Grenivík
Í tilkynningunni segir: „Halla Hrund býður sig fram til embættis forseta Íslands sem fulltrúi almennings, fulltrúi fólksins í landinu. Í embætti forseta vill hún halda gildum þátttöku og samvinnu á lofti og leggja áherslu á samstöðu okkar sem þjóðar, náttúru okkar, menningu og hugvit — fyrir framtíðina. Á opnum fundum á Norðurlandi mun Halla Hrund fara nánar yfir það hvers vegna hún býður sig fram og hvaða sýn hún hefur á embætti forseta Íslands í íslensku samfélagi og á alþjóðavettvangi. Þau sem hafa áhuga á að kynnast Höllu Hrund og framboði hennar betur eru hvött til að mæta og hitta hana.“
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |