Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 07:28 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 07:28 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 07:28 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 07:28 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 07:28 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 07:28 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Kjúklingarnir í núverandi meistaraflokksliði Hvatar í knattspyrnu karla voru stálheppnir að sigra liðsmenn meistaraliðsins frá árinu 1987. Já, ég segi 1987. Mikil stemning var á Blönduósvelli þegar þessi lið mættust á laugardaginn á Húnavöku. Er óhætt að segja að þessi leikur hafi verið einn af hápunktum Húnavöku ef tillit er tekið til aðsóknar og stemningar.
Meistaraliðið frá 1987 var nánast fullmannað eins og þegar titlinum, 4. deildarmeistarar, var landað og byrjuðu þeir mun betur í leiknum. Ungviðið virtist ekki átta sig á því að þarna var komið lið sem ætlaði með 3 stig heim, ekkert jafntefli eða tap var inni í myndinni. Enda koma það á daginn að það voru "gamlir" sem skoruðu fyrsta markið í leiknum, er Axel Rúnar Guðmundsson skoraði af stuttu færi eftir frábæran undirbúning þeirra bræðra Péturs og Hermanns Arasona. Staðan var 1-0 í hálfleik og yngra liðið alveg að fara á límingunum og ekki batnaði ástandið þegar Þormóður Orri Baldursson skoraði einnig af stuttu færi eftir hornspyrnu Gísla Torfa Gunnarssonar.
Í kjölfarið náðu "gamlir" nokkrum ágætum sóknum undir góðri stjórn liðstjóra liðsins Finnboga Hilmarssonar, en því miður vildi boltinn ekki inn en Hermann Arason fyrirliði komst næst því að skora þriðja markið er hann skaut í stöng í upplögðu færi. Þarna fór hins vegar að draga af heldri mönnunum og unglingarnir keyrðu upp hraðann enda var heiður þeirra í veði. Þeir náðu að skora 4 mörk á stuttum kafla er úthald og hugur virkuðu ekki lengur saman sem ein heild hjá gömlum.
Leiknum lauk sem sagt með sigri ungra 2-4 en þess skal getið að leikurinn var nánast óaðfinnanlega dæmdur af Stefáni Þresti Berndsen sem naut aðstoðar Björns Friðrikssonar markmanns og Þórðar Rafns Þórðarsonar, sonar Þórðar Pálma Þórðarsonar línuvarðar í gamla daga. Í lokin stilltu liðin sér upp ásamt dómara, línuvörðum og aðstoðarmönnum enda voru margir ljósmyndarar á staðnum til að mynda þennan stórgóða leik.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |