Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:59 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:59 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:59 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:59 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:59 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:59 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Margir Húnvetninga muna eftir hinni vinsælu ballhljómsveit Lexíu en hún var stofnuð á Laugarbakka í Vestur-Húnavatnssýslu árið 1977 og starfaði með hléum til ársins 1993. Árið 1982 kom út plata með hljómsveitinni og seldist hún í um 1.100 eintökum sem má teljast nokkuð gott þegar haft er í huga að þá var Rás 2 ekki til, aðeins gamla góða Gufan og spilun fékkst aðeins í þáttum eins og “ Frívaktin (óskalög sjómanna) Lög unga fólksins og Óskalög sjúklinga”.
Nú eru öll lögin af Lexíu plötunni komin á heimasíðu hljómsveitarinnar www.lexia.blog.is. Að sögn Jóhanns Arnar hljómborðsleikara hljómsveitarinnar hafa margir ekki heyrt þessi lög í 20 ár og jafnvel þó enn leynist einn og einn vínill í gömlum plötusöfnum hér og þar, þá eigi fáir orðið plötuspilara til að spila plöturnar. Jóhann Örn segir því að það hafi verið orðið löngu tímabært að koma þessum lögum út á stafrænt form.
Annars er það helst að frétta af hljómsveitinni að nú eru hljómsveitarmeðlimir í óða önn að undirbúa sig fyrir æfingabúðir en hljómsveitin mun koma saman og spila á Húnavöku 2008 sem haldin verður 11.-13. júlí í sumar. Þar ætlar hún að spila gamla og góða Lexíuprógrammið sem sjá má m.a. á heimasíðunni. Staðsetning æfingabúðanna fékkst ekki gefin upp vegna æstra aðdáanda sem gætu truflað æfingar, en að sögn Jóhanns Arnars er ekki ólíklegt að þeir félagar skjóti óvænt upp kollinum einhverstaðar í Húnaþingi næstu helgar.
Hljómsveitin Lexía
Hljómsveitin var stofnuð eins og áður sagði á Laugarbakka í Vestur – Húnavatnssýslu 1977. Hún starfaði með hléum til ársins 1993. Árið 1982 kom út plata með hljómsveitinni og voru meðlimir hennar þá eftirfarandi:
Axel Sigurgeirsson - trommur
Björgvin Guðmundsson - gítar, raddir
Guðmundur Þór Ásmundsson - hljómborð, harmonika, söngur, raddir
Marinó Björnsson - bassi, gítar, raddir
Ragnar Jörundsson - söngur, raddir, ásláttur
Lög: Marinó Björnsson
Textar: Arnór Benónýsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson
Útsetningar, upptaka og hljóðblöndun: Lexía, Sigurður Bjóla, Gunnar Smári, G. Hjörtur Howser og Helgi Kristjánsson
Aðstoð við hljóðfæraleik og útsetningu: Árni Björnsson bassi, Helgi Kristjánsson hljóðgervill, Þórður Árnason gítar
Um vorið 1982 urðu breytingar á liðskipun sveitarinnar. Björgvin og Guðmundur Þór hættu en í þeirra stað komu Jón Sverrisson sem lék á gítar og söng. Einnig Jóhann Örn Arnarsson sem lék á hljómborð, harmoniku og raddaði. Æft var til skiptis í Félagsheimilinu Ásbyrgi Laugarbakka og í Félagsheimili Blönduóss. Þegar hér var komið sögu var hljómsveitin orðin mjög þekkt á Norður og Vesturlandi og einnig á Vestfjörðum. Spilamennska óx jafnt og þétt þannig að í nokkur ár var spilað á dansleikjum tvö kvöld í viku allt árið um kring. Á þessum tíma var flóttinn af landsbyggðinni ekki hafinn þannig að ef dansleikur var auglýstur þá kom fólk til að skemmta sér. Oft var boðið upp á sætaferðir og á þéttbýlisstöðum var jafnvel hægt að spila tvö kvöld í röð, föstudags og laugardagskvöld. Tvö ár í röð spilaði Lexía á Suðureyri fimmtudagskvöld, Þingeyri föstudagskvöld og á Patreksfirði laugardagskvöldið en þar var eitt stærsta félagsheimili á landinu. Þangað komu 500 manns á laugardagskvöldi. Á heimleiðinni var komið við í Dölunum og leikið á dansleik sunnudagskvöldið í Tjarnarlundi. Einnig var oft spilað á Bíldudal.
Nánar má lesa um hljómsveitina Lexíu á heimasíðu sveitarinnar www.lexia.blog.is.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |