Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 11:07 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 11:07 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 11:07 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 11:07 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 11:07 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 11:07 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Leikmenn Hvatar í knattspyrnu karla geta verið stoltir af sínum leik í gær gegn Landsbankadeildarliðinu Fram er liðin mættust í 32-liða úrslitum Visa bikarsins á Laugardalsvelli. Andstæðingarnir þurftu heldur betur að hafa fyrir því að sigra í leiknum en hann endaði 2-1 fyrir Fram.
Þjálfarar Hvatar, sem að þessu sinni voru þeir Eysteinn Pétur Lárusson leikmaður og fyrirliði Þróttar og Páll Einarsson fyrrverandi leikmaður Þróttar og Fylkis, lögðu leikinn upp þannig að verjast mjög aftarlega og gefa fá færi á sér og gekk það mjög vel nánast allan fyrri hálfleikinn ef undan er skilið mark Framara á 35. mín sem kom eftir sókn þeirra upp vinstri kantinn og sending fyrir og Grímur Björn Grímsson laumaði sér fram fyrir varnarmann Hvatar og skoraði.
Staðan var 1-0 í hálfleik en upphafi þess síðari fengu Framarar nokkur ákjósanleg færi án þess að bein ógnun væri nokkurn tímann af þeim. Þegar líða tók á seinni hálfleikinn jókst sjálfstraust Hvatarmanna enn meira og uppskáru þeir jöfnunarmark á 74. mín þegar Hilmar Þór Kárason, sem var nýkominn inn sem varamaður, fékk boltann á hægri kanti eftir að Nezir hafði gripið boltann í markteignum og komið honum fljótt í leik. Hilmar Þór brunaði upp kantinn og sendi snilldar sendingu inn í teig Framara og þar var Mirnes Smajlovic mættur og skallaði knöttinn í netið 1-1 og allt opið að nýju.
Mikið fjör var í leiknum eftir þetta og þurftu Hvatarmenn að bjarga tvisvar á línu í sömu sókninni en allt virtist stefna í framlengingu þegar Hjálmar Þórarinsson skallaði boltann í nærhornið óverjandi fyrir Nezir í markinu. Í uppbótartíma fékk Bjarni Pálmason, framherji Hvatar, upplagt færi en því miður voru varnarmenn Framara aðeins og snöggir að skila sér tilbaka og björguðu í horn.
Lokatölur urðu 2-1 fyrir Framara en leikmenn og áhorfendur Hvatar, sem fjölmenntu í Laugardalinn og ber sérstaklega að þakka þeim frábæran stuðning frá fyrstu mínútu, geta svo sannarlega borið höfuðið hátt í dag og næstu dag því leikmenn sínu svo sannarlega hvað í þeim býr og nú er bara að byggja á þessum leik og koma brjálaðir í næsta leik sem er útileikur á mánudagskvöldið gegn Tindastól.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |