Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 03:21 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 03:21 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 03:21 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 03:21 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 03:21 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 03:21 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Við
undirrituð skipum 1. – 4. sæti E-lista Nýs afls í Húnavatnshreppi. Nýtt afl hefur verið í meirihluta
sveitarstjórnar Húnavatnshrepps síðastliðið kjörtímabil. Við höfum tekist á við
mikinn tekjusamdrátt frá Jöfnunarsjóði með góðum árangri ásamt því að vinna að
mörgum framfaramálum íbúunum til hagsbóta, í sveitarfélaginu og í samstarfi við
aðra.
Í
upphafi kjörtímabilsins var farið í endurskipulagningu og hagræðingu á rekstri
sveitarfélagsins og hefur það tekist svo vel að árið 2013 er besta rekstrarár
Húnavatnshrepps frá upphafi, rekstrarafgangur var rúmar 38 milljónir, þar af
5,5 milljónir vegna söluhagnaðar fasteigna. Uppfyllir Húnavatnshreppur nú
fyllilega fjármálareglur sveitarfélaga.
Við
viljum láta íbúana njóta góðs af þessum árangri og ætlum að lækka
fasteignaskatta strax á næsta ári ef við fáum tækifæri til.
Leikskólinn
Vallaból og Húnavallaskóli voru sameinaðir árið 2011 með rekstrarlega
hagkvæmni, fagleg sjónarmið og samþættingu að leiðarljósi og hefur sú sameining
tekist vel. Að Húnavöllum er frábær aðstaða og þar fer fram metnaðarfullt
skólastarf.
Stutt
hefur verið við framhaldsskólanema með styrkjum og samstarfi við Landsvirkjun
um sumarvinnu ungmenna. Því viljum við halda áfram.
Árið
2012 urðu tímamót þegar farið var farið að flokka heimilissorp í
Húnavatnshreppi og tóku íbúar þessari nýbreytni vel.
Helstu
framkvæmdir í sveitarfélaginu á kjörtímabilinu: Lokið var við gerð fráveitu. Gengið
var frá leikskólalóð með leikaðstöðu, lýsingu og hellulögn. Leikaðstaða við
grunnskólann var endurbætt. Bundið slitlag var lagt á bílaplön og aðkeyrslur
við Húnavallaskóla og kantar steyptir ásamt því að jarðvegsskipta og endurnýja
fráveitulagnir. Bundið slitlag var lagt á bílaplön við félagsheimilið
Dalsmynni. Endurnýjun glugga, gólfefna, þakefna og lýsingar í Húnavallaskóla. Endurnýjun
allra glugga í félagsheimilinu Húnaveri. Endurbætur á Fljótsdragaskála. Endurnýjun
fjarskiptakerfis.
Árið
2012 keypti Húnavatnshreppur hlut ríkisins í Reykjajörðinni ásamt fasteignum,
fimm íbúðum og einbýlishúsi á Húnavöllum og einbýlishúsi og bílskúr að
Steinholti á fasteignamatsverði. Hluti Reykjajarðarinnar var svo seldur
ábúendum árið 2013 að undangengnu verðmati. Allt að helmingur söluverðs
jarðarinnar er ætlaður til fjarskiptamála í sveitarfélaginu og bættrar
vinnuaðstöðu nemenda í Húnavallaskóla. Þrjár íbúðir og einbýlishús að
Húnavöllum, einbýlishús og bílskúr að Steinholti var svo selt til Fasteigna
Húnavatnshrepps ehf. á fasteignamatsverði. Hefur það húsnæði allt verið í
útleigu síðan sem áður stóð autt að hluta.
Húnavatnshreppur
gerðist stofnaðili að Þekkingarsetrinu á Blönduósi árið 2012 og hefur
uppbygging þess farið vel af stað. Húnavatnshreppur er aðili að dreifnámi á
Blönduósi sem fór af stað haustið 2013, er það mikið framfaraspor og góður
valkostur til framhaldsnáms í heimabyggð.
Nýir
hluthafar, Allrahanda ehf., komu inn í Hveravallafélagið ehf. árið 2013,
yfirtóku rekstur ferðaþjónustu að Hveravöllum og eru með metnaðarfull áform um
uppbyggingu þar.
Okkar
helstu áherslumál: Bættar samgöngur og
fjarskipti. Atvinnuuppbygging í héraði til nýtingar orku Blönduvirkjunar.
Aðgengi lögbýla að þriggja fasa rafmagni. Leiðrétting á skattlagningu
orkumannvirkja. Jöfnun raforku- og húshitunarkostnaðar.
Við
höfum hagsmuni íbúa Húnavatnshrepps að leiðarljósi í öllum okkar verkum.
X-E fyrir
Húnavatnshrepp !
Þóra
Sverrisdóttir rekstrarfræðingur og sjúkraliði, skipar 1. sæti
Jakob
Sigurjónsson bóndi, skipar 2. sæti
Magnús
Sigurðsson bóndi, skipar 3. sæti
Ingibjörg
Sigurðardóttir búfræðingur, skipar 4. sæti
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |