Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:46 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:46 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:46 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:46 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:46 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:46 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ég undirrituð bíð mig fram á lista umbótasinnaðra Blönduósinga (XJ). Ég er fædd í Vestur Skaftafellsýslu. Flutti ung til Skagastrandar, þar sem ég bjó til tvítugs. Þá flutti ég í Áshrepp hinn forna, sem nú tilheyrir Húnavatnshreppi og starfaði þar í hreppsnefnd í eitt kjörtímabil. Fyrir u.þ.b. 9 árum fluttist fjölskyldan á Blönduós. Ég starfa sem kennari við Húnavallaskóla. Í mínum huga er þessi þrjú sveitafélög (Blönduós, Skagaströnd og Húnavatnshreppur) eitt.
Það er mín skoðun, og hefur verið mjög lengi, að sveitafélög á okkar svæði ættu að leggja saman krafta sína og sameinast um að gera sýsluna okkar að betri stað til að búa á.
Málefni þessara sveitafélaga liggja öll saman. Allir vilja leggja mikla áherslu á atvinnuuppbyggingu, skólamál, þjónustu við fjölskyldufólk og þá sem minna mega sín. Einnig er það sameiginlegt með öllum sveitarfélögunum að þau berjast við fólksfækkun sem stjórnast e.t.v. af fábreyttum atvinnumöguleikum svæðisins. Ég tel að eina leiðin til að sinna þessum þáttum sé að við snúum bökum saman og vinnum að þessum málum í sameiningu, sem eitt sveitafélag.
Ég skora á vini mína í Húnavatnshreppi að taka upplýsta ákvörðun um sameiningarmál í skoðanakönnun á kjördag. Við hin ættum líka að vera hugrökk og taka þetta mikilvæga skref. Því við vinnum mun betur saman en í sundur.
Sameinaðir stöndum vér – sundraðir föllum vér !
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |