Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:37 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:37 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:37 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:37 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:37 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:37 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Ástæða þess að ég hef ekki haft þann tíma, sem ég hefði óskað til að sinna þessari kosningabaráttu er sú að nú þessar vikurnar er hámarksálag og lokahnykkur við að koma upp þeirri atvinnustarfsemi sem ég hef lengi unnið að hér á Skagaströnd. Hálfur sigur er unninn í þessu stóra verkefni. Með mér er einstaklingur og sex öflug fyrirtæki á Íslandi, Svíþjóð og Japan. Ég hef af veikum mætti en með mikilli þrautseigju komið þessu heim og saman með góðra manna hjálp.
Nútíma samfélag:
Nútíma samfélag er það flókið að allir málaflokkar sveitarfélagsins eru
háðir hver öðrum, það þarf að líta heilstætt á málin og hafa yfirsýn.
Atvinnumál hafa t.d. mikil áhrif á félagsstöðu fólks. Þau hafa líka áhrif á
allt stoðkerfið og þjónustuna í sveitarfélaginu. Það sama má segja um aðra
flokka svo sem fræðslumál Það mikilvægasta sem hverjum sveitarstjórnarmanni ber
að hafa í huga eru skýr markmið um hvert hann vill stefna sveitarfélaginu og
hvernig hann ætlar að ná þeim markmiðum. Stjórnendur sveitarfélagsins eru
þeir sem eiga frumkvæðið og leiða hina eiginlegu stefnumótun.
Atvinnulífið:
Það sem einkum einkennir atvinnulífið á Skagaströnd eru
miklar sveiflur. Annað hvort drýpur smjör af hverju strái eða þá að íbúarnir
hrekjast í burtu. Árið 1950 voru
búsettir á Skagaströnd 617 manns, nú 2014 eru þeir um 490. Skagstrendingar hafa
lært að öfgar eru vondar fyrir alla. Við
höfum líka sannarlega fengið að reyna að “steinn sem liggur of lengi á sama stað drepur
grasið undir sér”. Stöðnun er ekki til, bara framför eða afturför.
Atvinnumál:
Atvinnumál
hér á Skagaströnd eru algeru í uppnámi, fólki fækkar stöðugt. Til að komast upp
úr þeim öldudal sem við erum í duga ekki smáskammta lækningar. Að henda, handahófskennt
milljón hér og tveim þar er gagnslaust. Sveitarfélagið situr á mörg hundruð milljónum
sem teknar voru út úr atvinnulífinu hér á staðnum og því ber skylda til að koma
þessum fjármunum aftur inn í atvinnulífið og í vinnu, fólkið á skýlausan rétt á
því. Að kúra á þessum fjármunum úr atvinnulífi samfélagsins er lítilsvirðing
við það fólk sem hefur þurft að hrökklast héðan í burtu.
Kæru
Skagstrendingar.
Ef ég kemst
til áhrifa við stjórn sveitarfélagsins mun ég beita mér af fullum krafti við
endurreisn atvinnulífsins á Skagaströnd. Til að gefa hugmynd um það sem ég vil
láta skoða er m.a. blanda af fiskvinnslu og fullvinnslu sjávarfangs. Ég hef reyndar
látið gera skoðun á þessu, en fagleg úttekt er samt nauðsynleg. Ef fullvinnsla
sjávarfangs var tímabær 1986, þegar ég flutti aftur til Skagastrandar, er hún
það svo sannarlega í dag. Það er fullvissa mín að Skagaströnd geti aftur náð
vopnum sínum, en þá má ekki fljóta sofandi að feigðarósi eins og nú er að
gerast.
Gleðilegan sjómannadag og kveðjur til ykkar allra.
Steindór Haraldsson.
Vegna tilmæla H – listans um framboðsfund.
Við þökkum þetta tilboð, en munum ekki taka því. Við höfum skipulagt kynningu á framboði okkar með öðrum hætti. Við munum halda okkur við það skipulag.
Með virðingu,
Steindór Haraldsson
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |