Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:23 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:23 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:23 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:23 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:23 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:23 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Það er líflegt í litla bænum mínum núna, sjómannadagur
og kosningar framundan og bærinn hreinlega iðar af tilhlökkun og spenningi.
Það eru ekki margar vikur síðan ég sat og kvartaði
yfir því að fólk skartaði orði eins og íbúalýðræði, án þess að hafa nokkurn
raunverulegan áhuga á taka þátt og varla áhuga á að kynna sér málin. Þetta get
ég ekki sagt í dag.
Á vinnustöðum, kaffistofum og á netheimum takast menn
á um ýmis málefni og oft skapast fjörugar og skemmtilegar umræður. En þó ekki
alltaf. Stundum verð ég hrygg við lestur netmiðla, stundum tapa ég gleðinni
eitt andartak og stundum verð ég hreinlega þung á sálinni og svartsýn.
Sem betur fer bý ég að því að hafa kynnst 12 spora
starfi og eitt stærsta verkefnið sem ég tókst á við þar, var að taka ábyrgð á
eigin líðan og upplifun. Mér líkar vel við flesta en þó ekki alla og flestir
eru mér góðir en þó ekki allir. Hvort ég læt það skipta mig máli er mitt val.
Ég ber ein ábyrgð á viðbrögðum mínum. Enginn annar en ég ber ábyrgð á því
hvernig ég kem fram við annað fólk.
Annað verkefni í sporastarfinu var hreinlega að breyta
því hvernig ég horfi á heiminn. Í stað þess að einblína á þætti sem ekki eru í
lagi þá finnst mér gott að fara með æðruleysisbænina og hafa hana bak við eyrað
í öllum athöfnum daglegs lífs. Einbeita mér síðan að því sem er gott í kringum
mig og þakka fyrir það. Ég er ekki fullnuma í fræðunum, langt því frá, en
vonandi þó á réttri leið.
Fyrir hvað er ég þakklát í dag? Það er ansi margt:
Ég er þakklát fyrir að hafa fæðst hér og alist upp að
miklu leyti.
Ég er þakklát fyrir son minn og allt sem hann hefur
kennt mér og gefið af sér.
Ég er þakklát fyrir það gæfuspor að flytja hingað
fyrir tveimur árum.
Ég er þakklát fyrir allt það góða fólk sem hér býr og
bauð okkur mæðginin velkomin aftur heim.
Ég er þakklát fyrir öll brosin og glaðværðina sem
mætir mér hvert sem ég fer, þó það sé bara út að ruslatunnu.
Ég er þakklát fyrir vinnustaðinn minn. Fólkið sem þar
starfar við hlið mér og fólkið sem ég þjónusta.
Ég er þakklát fyrir ódýru íbúðina sem ég leigi af
Sveitarfélaginu.
Ég er þakklát fyrir hitaveituna sem gerir það að
verkum að ég get staðið undir sjóðheitri bununni eins lengi og ég þarf. Það er
gott eftir góðan sundsprett í köldum sjónum.
Ég er þakklát fyrir vöruúrvalið í búðinni og
þjónustuna sem ég fæ þar daglega.
Ég er þakklát fyrir náttúrufegurðina, fuglasönginn og
fagra fjallasýn, sama í hvaða átt er litið.
Þessa dagana er ég jafnframt þakklát fyrir góða hópinn
sem skipar H-listann, Skagastrandarlistann.
Þakklát fyrir þá gleði og bjartsýni sem einkennir
þennan samstillta hóp.
Þakklát fyrir að þarna er fólk sem hlustar og er
tilbúið að gera enn betur.
Þakklát fyrir að þarna er fólk sem ég treysti og fyrir
traustið sem mér er sýnt.
Ef velgengni þín vegur salt
og vonin er að flaksa.
Þú skalt elska og þakka allt
það sem á að vaxa.
Höf.
Hallgrímur Óskarsson
Ég hlakka til að sjá ykkur vonandi öll á laugardaginn!
Á kjörstað, í skrúðgöngu, sjómannamessu, skemmtisiglingu, á Hafnarhúsplaninu, í
sjómannadagskaffi, við talningu atkvæða eða á dansleik í Fellsborg.
Kjósum eftir hjartanu og höfum í huga að hvernig sem
þessar kosningar fara, þá ætlum við að búa hér áfram saman í sátt og samlyndi.
Kærar kveðjur til ykkar allra
X-H Sigurlaug Lára Ingimundardóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |