Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 02:19 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 02:19 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 02:19 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 02:19 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 02:19 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 02:19 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í ár fagna Skagstrendingar því að hafa val um það hverjir sitja í sveitarstjórn næstu 4 árin, vegna þess að hópur góðra manna og kvenna safnaði saman fólki á Ð-lista sem hefur einkennisorðin Við öll og er eins og nafnið ber með mér fyrir okkur öll.
Ð-listinn er raunverulegur
valkostur þegar kemur að því að velja sveitarstjórn til næstu fjögurra ára,
Ð-listann skipar fólk sem er tilbúið að vinna lýðræðislega fyrir samfélagið,
fólk sem hefur setið í sveitarstjórn, atvinnurekendur sem hafa áratuga reynslu
af fyrirtækjarekstri, fólk með reynslu úr félagsmálum og einstaklingar sem hafa
áhuga á að láta gott af sér leiða fyrir samfélagið sem við búum í. Kjörorð
Ð-listans eru gegnsæi, siðferði og íbúalýðræði, en hvernig ætlum Við öll að ná
þessu fram.
Fyrir það fyrsta hefur
verið stofnað bæjarmálafélag Ð-listans, en tilgangur þess er virkt aðhald
stjórnsýslunnar með því að tryggja það að raddir allra fái að heyrast með
reglulegum hætti. Ð-listinn vill að sveitarstjórn Skagastrandar setji sér siðareglur eins og lög
frá 18.sept. 2011 segja til um og tóku gildi 1. Janúar 2012. Einnig leggur
Ð-listinn áherslu á að íbúar fái vitneskju um að hvaða verkefnum sveitarstjórn
er að vinna að.
En spurningin er vissulega
ert þú kjósandi góður ánægður með ástandið eins og það er í dag? Ef þú ert það
þá er það líka allt í lagi en fyrir hina þá spyrjum við: Viltu fá að vita um
það sem er að gerast í sveitarfélaginu þínu? Viltu hafa áhrif á það sem sveitarfélagið
er að gera? Heldur þú að siðareglur breyti vinnubrögðum sveitarstjórnar eða
gegnsæi? Hvernig líst þér á að ganga í bæjarmálafélag og geta haft áhrif?
Veltu þessu fyrir þér og
gerðu upp hug þinn um það hvert þú vilt sjá Skagaströnd stefna.
Með bestu kveðju
X-GuÐlaug Grétardóttir
Við öll
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |