Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:00 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:00 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:00 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:00 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:00 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:00 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Hugmyndin kviknaði í haust eftir að hafa fylgst með fréttum um íslenskan landbúnað, hollustu matvöru, sauðfjárbændum og fleirum í útrás með vörur sínar á Borough matarmarkaðnum í Lundúnum og ýmsar aðrar fréttir um matarmarkaði, framsetningu lambakjöts og neytendur almennt.
Þá hugsuðum við: Hvað erum við Húnvetningar að gera í þessum málum? Er eitthvað verið að gera hér, er einver með afurðir beint frá býli? Hér eigum við frábært landbúnaðarhérað sem hefur upp á allt að bjóða. Getum við gert eitthvað til að auka við þær afurðir sem þegar eru til staðar?
Við ákváðum að hafa samband við nokkrar konur og sjá hvað þær segðu. Hugmyndirnar flæddu af stað, allt frá handverki, matarsmiðju í handverks- og matarmarkað eða búð með afurðir úr héraði. Það leiddi okkur að því hvað þyrfti að gera til að komast af stað með afurðir beint frá býli eða matarsmiðju. Anna Margrét Jónsdóttir hafði nýverið verið á fundi með Óla Þór hjá Matís sem vissi allt um það hvernig á að koma upp slíkri aðstöðu. Ákveðið var að kalla hann til til að halda erindi um hvað gera þarf, skref fyrir skref, til að mega vinna matvæli heima, þ.e. leyfismál, ferla og fleira.
Með þessum fundi viljum við stuðla að því að allir sem hafa áhuga á heimvinnslu matvæla í hvaða mynd sem er hafi möguleika á að kynna sér ný tækifæri.
Fundurinn verður haldinn næstkomandi miðvikudag, 27. janúar, klukkan 20:00 í sal BHS, Húnabraut 13 á Blönduósi.
Sigrún Hauksdóttir
Selma Svavarsdóttir
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |