Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:41 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:41 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:41 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:41 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:41 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:41 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Húnaþing vestra skilaði 77,6 milljón króna rekstrarafgangi í fyrra og er það umtalsvert betri niðurstaðan en fjárhagsáætlun ársins með viðaukum gerði ráð fyrir en samkvæmt henni var gert ráð fyrir 86 milljón króna neikvæðri rekstrarniðurstöðu. Helsta skýringin er söluhagnaður rekstrarfjármuna sem nam 64,4 milljónum. Árið 2022 var rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins neikvæð um 86 milljónir.
Ársreikningur Húnaþings vestra 2023 var lagður fram til seinni umræðu á sveitarstjórnarfundi á miðvikudaginn. Samkvæmt honum er skuldahlutfallið 68,4% samanborið við 83,6% árið 2022. Í hefðbundnu árferði ber sveitarfélögum að sjá til þess að heildarskuldir og skuldbindingar sveitarsjóðs og undirfyrirtækja séu ekki hærri en sem nemur 150% af reglulegum tekjum. Húnaþing vestra er því langt undir því marki. Langtímaskuldir voru 962,9 milljónir í árslok 2023 samanborið við 1.002,2 milljónir árið 2022. Fjárfestingar í fyrra námu 194,9 milljónir samanborið við 170,8 milljónir árið áður. Stærstu fjárfestingar ársins voru endurbætur lagna við íþróttamiðstöðina og lagning nýrrar vatnsveitu til Laugarbakka.
„Niðurstaða ársreiknings er afar jákvæð og sýnir hraðari viðsnúning í rekstri í kjölfar heimsfaraldurs en vonast hafði verið til og það þrátt fyrir óhagstætt efnahagsumhverfi. Þetta má að mestu leyti þakka skynsamri fjármálastjórn undanfarinna ára, lágmarks lántökum og almennri ráðdeild í rekstri,“ segir í bókun sveitarstjórnar.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |