Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 22:42 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 22:42 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 22:42 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 22:42 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 22:42 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 22:42 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í byrjun þessa mánaðar hefur um 63% húsnæðis á Skagaströnd verið tengt hitaveitu og er reiknað með að hlutfallið verði komið í 82% næsta vor. Þann 1. september síðastliðinn féll niður gildistíma reglna um kostnaðarþátttöku sveitarfélagsins vegna hitaveituvæðingarinnar en ákveðið hefur verið að framlengja gildistímann til 1. maí 2015.
Þetta kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Skagastrandar frá 12. september síðastliðnum. Þar segir að í ljósi þess að hitaveitutengingar hafi gengið hægar en upphaflega var áætlað, af ýmsum ástæðum, samþykki sveitarstjórn að framlengja gildistíma reglna um kostnaðarþátttöku til 1. maí 2015 en tekið er fram að ekki verður um frekari framlengingar að ræða. Þetta er í annað sinn sem gildistíminn er framlengdur en upphaflega áttu hann að gilda til 1. júní síðastliðinni. Á vef Skagastrandar má finna samþykktina um kostnaðarþátttöku vegna hitaveituvæðingar.
Ný hitaveita var tekin formlega í notkun á Skagaströnd 1. nóvember 2013. Sveitarfélagið Skagaströnd og RARIK ohf. undirrituðu samning 30. desember 2011 um lagningu hitaveitu til Skagastrandar og 22. maí 2013 var fyrsta skóflustungan tekin fyrir dreifikerfi hitaveitu RARIK á Skagaströnd. Hitaveitan á Skagaströnd er stækkun Blönduósveitu sem nær yfir veitusvæði á Blönduósi og Skagaströnd, auk hluta af dreifbýlinu milli Blönduóss og Skagastrandar. Heita vatnið kemur frá Reykjum í Húnavatnshreppi.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |