Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 05:30 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 05:30 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 05:30 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 05:30 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 05:30 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 05:30 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra hefur sett Birnu Ágústsdóttur, sýslumanninn á Norðurlandi vestra, tímabundið sem sýslumann á Vesturlandi frá 1. júní nk. til og með 31. maí 2025. Tilefnið er beiðni Ólafs Kristófers Ólafssonar, sýslumanns, um lausn frá embætti.
Á vef dómsmálaráðuneytisins kemur fram að nú standi yfir stefnumótunar- og greiningarvinna í málefnum sýslumanna og fyrirséð að þeirri vinnu verður ekki lokið fyrir 1. júní 2024. Jafnframt segir „var sú ákvörðun tekin að setja Birnu Ágústsdóttur tímabundið til að gegna embættinu á Vesturlandi til viðbótar við eigið embætti á Norðurlandi vestra. Birna mun því gegna báðum embættunum á framangreindu tímabili.“
„Sú ákvörðun að setja sýslumenn tímabundið yfir fleiri en eitt embætti í stað þess að skipa nýjan til fimm ára, er tekin vegna þeirra tímamóta sem sýslumannsembættin standa nú á. Verið er að móta framtíðarstefnu í málefnum sýslumanna og þykir af þeirri ástæðu ekki rétt að taka ákvarðanir til lengri tíma um embættin sem kunna að fara gegn þeirri stefnu. Þannig var Kristín Þórðardóttir, sýslumaðurinn á Suðurlandi, sett tímabundið yfir embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum í október 2023. Þessi tilhögun er einnig í samræmi við þær áherslur ráðherra í málefnum sýslumanna að unnið verði að því að fella niður áhrif umdæmismarka gagnvart almenningi.“ segir einnig á vef ráðuneytisins.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |