Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Miðvikudagur, 8. maí 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Maí 2024
SMÞMFL
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 01:30 0 0°C
Laxárdalsh. 01:30 0 0°C
Vatnsskarð 01:30 0 0°C
Þverárfjall 01:30 0 0°C
Kjalarnes 01:30 0 0°C
Hafnarfjall 01:30 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
07. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
06. maí 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. maí 2024
Eftir Sigurbjörn Þorkelsson
29. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
29. apríl 2024
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Sólúr
Sólúr
Fréttir | 20. september 2014 - kl. 20:48
Listaverkið Sólúr formlega vígt

Í dag var listaverkið Sólúr formlega vígt en það hefur verið reist á torgi í miðju Skagastrandar. Listaverkið er eftir hinn þjóðkunna listamann Magnús Pálsson og er tilvísun í samspil tímans og sólargangsins þar sem gömul eyktarmörk eru í heiðri höfð. Verkið samanstendur af fjórum stuðlabergsstöplum sem eru sniðnir þannig til að rauf á milli þeirra getur varpað geislum sólar niður á eyktarmörk. Geisli sólar í hásuðri fellur t.d. á „hádegi“ sem er markað í stétt í kringum verkið. Á stuðlabergsdrangana er rist stórum stöfum: „Tíminn er eins og vatnið og vatnið er djúpt og kalt“.

Listskreytingasjóður ríkisins leggur verkið til og mun afhenda það formlega en verkið verður vígt með afhjúpun á skildi með nafni verksins og listamannsins.

Magnús Pálsson hefur verið einn helsti þátttakandi í nýrri skilgreiningu á hugtakinu list í íslenskri myndlist, sem hugmyndasmiður og lærimeistari. Hugmyndaleg listsköpun hans hefur alltaf verið afar persónuleg. Hann hættir aldrei að koma á óvart með verkum sínum.

Magnús fór að láta að sér kveða í íslensku listalífi á árunum milli 1960 og 1970 eftir að hafa verið í listaskólum í Reykjavík og Austurríki og lært að búa til leikmyndir í Englandi. Á þessum árum urðu miklar breytingar í íslensku listalífi. Hann og aðrir listamenn sem þá voru að koma fram á sjónarsviðið litu öðrum augum á myndlistina en áður hafði verið gert og fóru allt aðrar leiðir. Þeir voru kallaðir nýlistamenn. Magnús Pálsson er einn af þeim listamönnum sem hefur notið meiri og meiri viðurkenningar, bæði innan lands og utan eftir því sem hann hefur lagt listinni til fleiri verk.

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið