Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:24 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:24 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:24 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:24 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:24 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:24 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Á vef Bændablaðsins er fjallað um fyrirtæki Birgit Kositzke, Kanína ehf., sem hefur verið að byggjast upp í Húnaþingi vestra undanfarin misseri. Birgit segir að staðan sé góð um þessar mundir, það gangi bara vel og í rauninni betur en hún átti von á. Hún segir að stefnt sé að því að slátra að jafnaði einu sinni í mánuði framvegis og muni það magn sem fer á markað aukast smátt og smátt. Gerir hún ráð fyrir að verð á íslensku kanínukjöti verði svipað og á nautalund.
Eskja í Reykjavík hefur umboð fyrir kanínukjötið og bendir Birgit þeim sem áhuga hafa á að verða sér úti um ferskt kanínukjöt að hafa samband við fyrirtækið.
Auk þess sem félagið býður kanínukjöt til manneldis verða möguleikar á að nýta aukaafurðir einnig skoðaðir og nýttir eftir því sem tækifæri eru á. Það á til dæmis við um skinn, en tilraunir með að súta skinn hjá fyrirtækinu Loðskinni á Sauðárkróki lofa að hennar sögn góðu.
Birgit segist bjartsýn á framhaldið, út sé kominn bæklingur með uppskriftum og leiðbeiningum um hvernig best sé að meðhöndla og elda kanínukjöt og séu viðtökur góðar. Þá sé fyrirhugað að opna nýtt veitingahús á Hvammstanga með vorinu, líklega í mars og uppi séu hugmyndir um að efna þar til sérstakrar kanínuveislu. „Það er margt spennandi í gangi og ég er bjartsýn,“ segir Birgit í samtali við Bændablaðið.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |