Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 13:33 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 13:33 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 13:33 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 13:33 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 13:33 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 13:33 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Blár apríl, vitundarvakning um einhverfu, hefst formlega í dag 1. apríl. Á Íslandi og um allan heim munu fyrirtæki og stofnanir þátt í vitundarvakningunni með því að baða byggingar sínar í bláu ljósi í apríl. Styrktarfélag barna með einhverfu stendur fyrir vitundarvakningunni hér á landi. Styrktarsöfnun félagsins hefst formlega í dag og geta áhugasamir styrkt málefnið um 1.000 kr. með því að hringja í 902-1010.
Í ár verður safnað fyrir námskeiðum fyrir foreldra barna með einhverfu sem og félagsfærninámskeiðum fyrir börn með einhverfu. Námskeiðin verða haldin í samvinnu við Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins. Nánari upplýsingar um söfnunina má finna hér: https://www.facebook.com/einhverfa
Hús og stofnanir sem taka þátt í átakinu með því að lýsa upp með bláum lit Harpa, Bessastaðir, Höfði, Ráðhúsið, Landsspítalinn, Smáralind, Fríkirkjan í HF, Hellisheiðarvirkjun, Orkuveitan, Orka náttúrunnar, Securitas, Vegagerðin, Radisson Blu og Kópavogskirkja
Blár apríl nær hámarki á föstudaginn 10. apríl. Þá munu börn í leikskólum og nemendur í grunn- og framhaldsskólum taka þátt í vitundarvakningunni með því að klæðast bláu og sýna afrakstur þemadaga um einhverfu. Stjórnendur Smáralindar munu hvetja verslunar- og veitingastaðaeigendur til að taka þátt í deginum með bláu þema. Þá verður Hreyfing með styrktarspinningtíma þar sem fyrirtækjum og einstaklingum gefst kostur á því að kaupa hjól til styrktar söfnuninni.
Einhverfa kemur samfélaginu öllu við. Athyglisverðar staðreyndir um einhverfu:
· Eitt af hverju 88 barni fæðist með röskun á einhverfurófi
· Hjá drengjum eru líkurnar 1 á móti 54 – fimm sinnum meiri en hjá stúlkum
· Einhverfa er fötlun - ekki sjúkdómur og því ólæknandi
· Það skiptir sköpum fyrir einhverfa að fá viðeigandi þjálfun eins fljótt og hægt er
-
Fögnum fjölbreytileikanum og tökum fólki eins og það er
Nánari upplýsingar um einhverfu má finna á einhverfa.is, greining.is og https://www.facebook.com/einhverfa
-Fréttatilkynning-
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |