Fyrri mynd
Nsta mynd
...
Ok
Velkomin á vef Húnahornsins. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Hnahornið
Open Menu Close Menu
Hnahornið
Laugardagur, 27. apríl 2024
   m/s
C
CW
huni.is - RSS-efnisveita
 
Apríl 2024
SMÞMFL
31123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
2829301234
FyrriNúnaNæsti
Veðurstofa Íslands Vegagerðin
Holtavörðuh. 04:11 0 0°C
Laxárdalsh. 04:11 0 0°C
Vatnsskarð 04:11 0 0°C
Þverárfjall 04:11 0 0°C
Kjalarnes 04:11 0 0°C
Hafnarfjall 04:11 0 0°C
VegagerðinVestfirðirVestfirðirNorðurlandNorðausturlandVesturlandAllt landiðMiðausturlandSuðvesturlandSuðurlandSuðausturland
Nöldrið
13. apríl 2024
Klúðrið er víða
Klúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug.
::Lesa
Leita í netfangaskrá
 
73. þáttur. Eftir Jón Torfason
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
20. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
14. apríl 2024
Eftir / Written af / by Morgan C. Bresko
13. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
10. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
07. apríl 2024
72. þáttur. Eftir Jón Torfason
07. apríl 2024
Eftir Inga Heiðmar Jónsson
02. apríl 2024
Myndin: Skagastrond.is
Myndin: Skagastrond.is
Fréttir | 03. ágúst 2015 - kl. 18:06
Mikil plastmengun í hafinu

Sjávarlíftæknisetrið Biopol ehf. og Sveitarfélagið Skagaströnd standa saman að verkefni sem gengur út á að hvetja fólk til þess að ganga um fjörur, sem og önnur náttúrusvæði, í þeim tilgangi að taka með sér plast sem verður á vegi þess og koma í ferli sorps og endurvinnslu.

Á fundi um umhverfismál sem haldinn var á Skagaströnd síðastliðið vor flutti James Kennedy sjávarlíffræðingur hjá BioPol fyrirlestur um plastmengun í hafi. Í texta hans og myndmáli með fyrirlestir kom skýrt fram hve ógnvænlegur sóðaskapur mannsins er í umgengni við hafið sem er ein af undirstöðum lífs á jörðinni. Frá þessu er sagt á vef Skagastrandar.

Þar kemur fram að James hefur ásamt konu sinni Karin verið iðinn við að tína saman og færa til endurvinnslu allt það plast sem finnst á fjörum í nágrenni við Skagaströnd. „Þau eiga mikinn heiður skilinn fyrir að hafa með því móti sett fram fyrirmynd sem við öll ættum að tileinka okkur,“ segir á vef Skagastrandar.

Á fundinum kom fram að magnið sem rekur á fjörur er mikið og ógnin við lífríkið meiri en almennt menn gera sér grein fyrir í daglegu lífi. Fyrir forgöngu James og Karin var sett af stað verkefni sem BioPol og Sveitarfélagið Skagaströnd standa saman að og gengur það út á að hvetja alla sem ganga um fjörur sem og önnur náttúrusvæði til að taka með sér það plast sem verður á vegi þeirra og koma í ferli sorps og endurvinnslu.

Á vef Skagastrandar segir: „Það er ugglaust hægt að finna ótölulegan fjölda skýringa á því hvers vegna svo mikið plast er að finna í hafinu og annarsstaðar í okkar „hreinu náttúru“. Umgengni við hafið er vissulega orðin miklu betri en áður þar sem sorpi er ekki lengur sturtað beint í sjóinn og reglur hafi verið settar um að sjófarendum sé óheimilt að kasta sorpi í hafið. Það er hins vegar vel þekkt að á okkar stormasömu eyju fýkur allt sem laust er ekki síst hið létta plast þegar hvassviðri ganga yfir. Við þurfum því að huga betur að því að laust efni – ekki síst plast, geti ekki fokið á haf út gert þar usla í umhverfi og lífríki. Við sem neytendur þurfum líka að huga betur að því hvað efni við drögum að okkur í daglegri neyslu, efni sem við í mörgum tilfellum notum ekki nema til að koma neysluvörunni á milli verslunar og heimilis, efni sem oftast flokkast undir efnaheitið PLAST.“

Höf. rzg
 
Prenta Prenta  
 
Til baka
 

©2024 Húnahornið