Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 00:36 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 00:36 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 00:36 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 00:36 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 00:36 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 00:36 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Komið hefur fyrir að aðeins einn lögreglumaður er starfandi á Norðurlandi vestra en svæðið nær frá miðri Holtavörðuheiði og upp á miðja Öxnadalsheiði. Ekki er til fjármagn til að kalla út lögreglumenn á aukavaktir þegar um forföll er að ræð. Þetta kom fram á fundi byggðarráðs Húnaþings vestra með lögreglustjóra Norðurlands vestra en gögn um vaktafyrirkomulag lögreglunnar voru lögð voru fram á fundi byggðarráðs á mánudaginn.
Samkvæmt vaktafyrirkomulaginu eru fjórir lögreglumenn á annarri lögreglustöðinni og þrír á hinni, á tveimur vöktum. Það eru því sjö lögreglumenn að vinna hvern dag þegar fullmannað er. Þá kemur fram að unnið sé að þjálfun starfsmanna, s.s. skot- og valdbeitingaþjálfun, á venjubundnum vöktum starfsmanna sem geri viðbragðstíma lengri en annars. Aðalstöð lögreglustjóra er á Sauðárkróki og lögreglustöð er á Blönduósi. Engin mönnuð lögreglustöð er í Húnaþingi vestra.
Byggðarráð Húnaþings vestra hefur einnig óskað eftir gögnum frá lögreglunni um samskipti við Neyðarlínuna 112 þann 24. ágúst síðastliðinn, daginn sem bíll fór í höfnina á Hvammstanga og áhættumat sem gert hefur verið fyrir svæðið. Þau gögn hafa ekki ennþá borist byggðarráði.
Þá hefur byggðarráð óskað eftir fundi með innanríkisráðherra til að ræða löggæslumál í Húnaþingi vestra og mun sá fundur fara fram 21. september næstkomandi.
Tengdar fréttir:
Vill mannaða lögreglustöð á Hvammstanga
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |