Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 04:08 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 04:08 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 04:08 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 04:08 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 04:08 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 04:08 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Í vikunni var á Akureyri kynnt verkefni um að skapa sérstakt vörumerki fyrir veginn meðfram strandlengjunni frá Sauðárkróki til Vopnafjarðar, ef áhugi væri fyrir slíku hjá ferðaþjónustufyrirtækjum á þeirri leið. Sérstakur starfshópur með fulltrúum úr landshlutanum hefur unnið að verkefninu undanfarið en markmiðið er að skapa tækifæri til markaðssetningar og fjölga ferðamönnum á þessari leið.
Talsverð umræða hefur verið um málið á meðal Húnvetninga á Facebook og furða margir sig á af hverju vegurinn í verkefninu sé ekki látinn ná yfir allt Norðurland, þ.e. fyrir Skagann og Vatnsnes líka og til Hvammstanga eða Borðeyrar.
Í samtali við Ríkisútvarpið segir verkefnisstjórinn Christiane Stadler að markmiðið sé að dreifa ferðamönnum betur á önnur svæði, eins og Melrakkasléttu, og að skapa sterkt markaðstæki til að kynna Norðurland á innlendum og erlendum markaði.
Fram kemur í frétt Ríkisútvarpsins að leiðin eigi að byrja á Sauðárkróki og þaðan sé keyrt meðfram strandlengjunni til Hofsóss, fyrir Tröllaskaga og til Akureyrar. Þaðan sé svo keyrt til Grenivíkur og þar snúið við, og farið í gegnum Ljósavatnsskarð og til Húsavíkur. Þar heldur vegurinn meðfram strandlengjunni áfram alla leið til Vopnafjarðar. Á leiðinni hafa ferðamenn tækifæri til að skoða sjávarþorp og kynnast því hvernig samfélögin í þessum þorpum urðu til. Sömuleiðis væri hægt að bjóða upp á ýmiss konar upplifun á leiðinni, líkt og er gert nú þegar. Verkefnið er nú í þróun og endanlegt vörumerki fyrir leiðina er ekki tilbúið, en Stadler segist vongóð um að þetta verði að veruleika.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |