Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 | 1 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 01:55 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 01:55 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 01:55 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 01:55 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 01:55 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 01:55 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Verkefnið sem kynnt var á Akureyri í vikunni um sköpun sérstaks vörumerkis um strandvegi á Norðurlandi hófst fyrir um einu og hálfu ári og þá sem heimskautsvegur eða Arctic Circle Route. Verkefnið kom inn á borð Markaðsstofu Norðurlands í september í fyrra frá hópi aðila sem settu það af stað og unnu að undirbúningi þess fram að síðasta hausti. Markaðsstofan réð verkefnisstjóra til fimm mánaða til þess að þróa verkefnið áfram en starfið er fjármagnað af aðilum sem hófu verkefnið, þ.e. Sveitarfélaginu Skagafirði, Fjallabyggð, Dalvíkurbyggð, Akureyrarbær og Norðurhjara sem eru ferðaþjónustusamtök á svæðinu frá Kelduhverfi austur á Bakkafjörð.
Þessir aðilar, fyrir utan Sveitarfélagið Skagafjörð, fengu styrk til verkefnisins úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Uppbyggingarsjóður Norðurlands vestra hafnaði aftur á móti umsókn um að styrkja verkefnið og ákvað þá Sveitarfélagið Skagafjörður að fjármagnaði verkefnið sjálft fyrir sitt svæði. Sveitarfélög í Húnavatnssýslum hafa ekki fengið sérstaka kynningu á verkefninu síðan það kom til Markaðsskrifstofu Norðurlands.
Áhersla lögð á að kynna verkefnið fyrir ferðaþjónustufyrirtækjum
Samkvæmt upplýsingum frá Markaðsstofu Norðurlands er verkefnið unnið með þeim hætti að hægt er að framlengja veginn í vesturátt svo að allt markaðsstofusvæðið sé undir, þ.e. frá Borðeyri og yfir á Bakkafjörð. Þannig geri framtíðartillögur og teikningar ráð fyrir því að strandvegir í Húnavatnssýslum séu með. Það fari svo eftir áhuga ferðaþjónustuaðila á svæðinu hver þróunin verði. Verkefnið sé nú fjármagnað til fimm mánaða eða fram í apríl næstkomandi. Nýtt fjármagn þurfi þá að koma til ef verkefnið eigi að halda áfram og eðlilegt sé að það komi frá öllum svæðum sem vilji taka þátt.
Kynningin á verkefninu á Akureyri síðustu daga er á vegum verkefnisstjóra Arctic Circle Route ásamt stýrihópnum sjálfum. Áherslan kynningarfundanna er að kanna áhuga ferðaþjónustufyrirtækja á verkefninu og fá þau í samstarf um þróun þess. Samkvæmt Markaðsstofu Norðurlands býðst öllum samstarfsaðilum hennar að vera með í verkefninu.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |