Apríl 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | L | |
31 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 1 | 2 | 3 | 4 |
Fyrri | Núna | Næsti |
Holtavörðuh. | 18:32 | 0 | 0°C |
Laxárdalsh. | 18:32 | 0 | 0°C |
Vatnsskarð | 18:32 | 0 | 0°C |
Þverárfjall | 18:32 | 0 | 0°C |
Kjalarnes | 18:32 | 0 | 0°C |
Hafnarfjall | 18:32 | 0 | 0°C |
13. apríl 2024 Klúðrið er víðaKlúðrið og bullið er víða í samfélaginu okkar og er af mörgu að taka. Ætla ég að nefna aðeins nokkur atriði. Landsbankaklúðrið í kringum kaupin á TM. Alveg er það merkilegt þegar embættis- menn telja sig geta tekið ákvarðanir um hvað sem þeim dettur í hug. ::Lesa |
Sveitarfélagið Skagafjörður segir engin tilfelli hafa komið upp þar sem kviknað hafi grunur um að starfsfólk á sambýlum sveitarfélagsins misbeiti valdi sínu frá því sveitarfélagið tók við ábyrgð þjónustu á sambýlinu á Blönduósi í ársbyrjun 2016. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sveitarfélaginu vegna fréttar sem birt var í Ríkissjónvarpinu í vikunni. Þar sagði frá úrskurði sérfræðiteymis innan velferðarráðuneytisins síðan í fyrra um að ólögmætri nauðung og þvingun væri beitt á sambýlinu á Blönduósi. Brotalamir hafi verið í starfsemi sambýlisins frá árinu 2011.
Í yfirlýsingu frá Sveitarfélaginu Skagafirði segir að það hafi tekið við ábyrgð á þjónustu við fatlað fólk á Norðurlandi vestra í ársbyrjun 2016. Það hafi verið gert með samningi allra sjö sveitarfélaganna á Norðurlandi vestra um sameiginlegt þjónustusvæði um þjónustu við fatlað fólk. Frá árinu 2011 höfðu sveitarfélögin verið í samstarfi innan byggðasamlags um málefni fatlaðs fólks, ásamt Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð, þar sem ábyrgð á þjónustunni var þó hjá hverju félagsþjónustusvæði fyrir sig.
Í yfirlýsingunni segir að þær aðgerðir sem sveitarfélagið hefur gripið til síðan séu:
-
Fundað var með réttindavakt Velferðarráðuneytisins og farið yfir áform sveitarfélagsins um aðgerðir til úrbóta.
-
Ráðgjafi í málefnum fatlaðs fólks var ráðinn til þess að vera sveitarfélaginu innan handar við úrbætur.
-
Fylgt var leiðbeiningum sérfræðiteymis Velferðarráðuneytisins um aðgerðir til að draga úr nauðung við fatlað fólk.
-
Ráðinn var forstöðumaður með menntun í þroskaþjálfafræði.
-
Stöðugildum starfsfólks við heimilið var fjölgað og vaktafyrirkomulagi breytt.
-
Markvisst hefur verið unnið að því að miða þjónustuna betur að þörfum einstaklinganna ásamt því að veita sértæka ráðgjöf og stuðning til starfsmanna heimilisins.
-
Komið var á samvinnu við Heilbrigðisstofnun Norðurlands varðandi heilsu og vellíðan íbúanna.
-
Hafnar voru viðræður við húseiganda um breytingar á húsnæðinu sem miða að því að breyta því í sérbýli.
Þá segir í yfirlýsingunni að engin tilfelli hafi komið upp þar sem kviknað hafi grunur um að starfsfólk misbeiti valdi sínu síðan Sveitarfélagið Skagafjörður hafi tekið við ábyrgð þjónustu á sambýlinu á Blönduósi. Starfsfólk sambýlisins vinni heilshugar að ofangreindum úrbótum í samstarfi við sveitarfélagið. Sveitarfélagið Skagafjörður leggi ríka áherslu á að vel sé staðið að allri þjónustu við íbúa sambýlisins á Blönduósi og að áfram verði markvisst unnið að úrbótum í þjónustu við íbúa og þeirri vinnu hraðað sem kostur er.
Sveitarfélagið Skagafjörður tekur undir áherslur félags- og jafnréttismálaráðherra um að fjölga beri réttindagæslumönnum fatlaðs fólks og að aukið sé við eftirlit með starfsemi þjónustu við fatlað fólk.
02. apríl 2023 Sjö leiðir til að létta þér þrifin í vor og sumarNú er vorið komið og sumarið framundan og þá er ekki úr vegi að koma með nokkur góð húsræða. ::Lesa |
03. febrúar 2023 Á ferðalagiGuðmundur var að spjalla við Tóta, bróður sinn í Kaliforníu. ::Lesa |